Ólympíumeistari í bráðaaðgerð á hálsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. desember 2025 06:31 Hin svissneska Michelle Gisin hefur unnið þrenn verðlaun á Ólympíuleikum og þótti líkleg til að bæta við fleirum á nýju ári. Getty/ Alain Grosclaude Aðeins tveimur mánuðum fyrir Vetrarólympíusleikana lenti ein stærsta svissneska alpastjarnan í alvarlegu slysi á æfingu.
Á fimmtudagsmorgun varð ljóst að tvöfaldur ólympíumeistari, Michelle Gisin, hafði fallið illa á brunæfingu á heimavelli í St. Moritz. Gisin var flutt úr brekkunni með þyrlu eftir að óhappið varð. Í gærkvöldi sendi svissneska skíðasambandið frá sér uppfærslu á heilsufari þessarar reyndu skíðakonu. Hún þurfti að fara í bráðaaðgerð á hálsi eftir slæma byltu en getur hreyft handleggi og fætur. Þar kemur fram að rannsóknir hafi leitt í ljós áverka á hægri úlnlið, vinstra hné og efri hluta hryggsúlu. Two-time Olympic gold medallist Michelle Gisin was flown by helicopter to hospital after crashing during a training run in St. Moritz.The Swiss ski team revealed she suffered injuries to her right wrist, left knee and cervical spine but is "is doing well under the… pic.twitter.com/R1NL56Fs4f— TNT Sports (@tntsports) December 11, 2025 „Til að meðhöndla hálsliðina hefur Gisin verið flutt á Hirslanden-sjúkrahúsið í Zürich af svissnesku flugbjörgunarsveitinni. Þar verður gerð aðgerð á hálsliðunum í dag,“ skrifar sambandið og bætir við: „Gisin líður vel miðað við aðstæður og getur hreyft handleggi og fætur eðlilega.“ Áverkar alpastjörnunnar á hægri úlnlið og vinstra hné verða einnig rannsakaðir frekar. Það er þó ekki hægt að gera fyrr en búið er að koma stöðugleika á hálsliðina. ⛷️🇨🇭 | Michelle Gisin kwam tijdens een training in St. Moritz hard ten val en werd per helikopter afgevoerd. Gelukkig is ze bij bewustzijn, maar Gisin moet wel geopereerd worden. 🚁🙏 #michellegisin📺 Stream de olympische winter op HBO Maxhttps://t.co/l2qL3WzGAp— Eurosport Nederland (@Eurosport_NL) December 11, 2025 Það er eins og það séu einhver álög á svissneska skíðalandsliðinu. Gisin er þriðji ríkjandi ólympíumeistarinn í svissneska kvennaliðinu sem meiðst við æfingar á stuttum tíma. Lara Gut-Behrami og Corinne Suter hafa lent í því sama nýverið. Ólympíutímabili Gut-Behrami lauk þegar hún sleit krossband í vinstra hné er hún féll á æfingu í Copper Mountain í Colorado í nóvember. Suter hefur fyrir sitt leyti verið frá keppni í um mánuð vegna meiðsla á fæti, hné og ökkla eftir fall á æfingu í St. Moritz nýlega. Hin 32 ára gamla Michelle Gisin á gull frá síðustu tveimur Ólympíuleikum í tvíkeppni. Þegar tiltölulega fáar vikur eru til Ólympíuleikanna á Ítalíu eru Svisslendingar skyndilega án stórs hluta af hraðgreinaliði sínu í kvennaflokki.
Skíðaíþróttir Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille KR - Njarðvík | Toppslagur í Vesturbænum O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Gerpla fullkomnaði frábæra bikarhelgi Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Rodman í heiðurshöll WWE Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Friðrik Leó áfram en Birgir Leifur úr leik í Marsfárinu Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Ármann fékk skell í kveðjugjöf Tryggvi fagnaði eftir trylli í Pýreneafjöllum Sjá meira