Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. desember 2025 14:27 Mynd fengin af heimasíðu FCK, þar sem leikmenn á þessu aldursbili eru á æfingu. Sitt hvoru megin við Eyrarsundið milli Danmerkur og Svíþjóðar eru stórliðin FC Kaupmannahöfn og FF Malmö staðsett. Sænska fótboltafélagið ásakar danska stórliðið um að lokka unga leikmenn til félagsins með ólöglegum hætti.
Mánuðum saman hefur FF Malmö gagnrýnt FC Kaupmannahöfn fyrir að bjóða börnum, niður í allt að sex ára gömlum, að ganga til liðs við félagið. Rígurinn er mikill milli nágrannaliðanna, eins og sást þegar þau mættust í undankeppni Meistaradeildarinnar í haust. Svo hátt heyrðust ásakanirnar á síðasta tímabili að málið var tekið fyrir á aðalfundi FCK í apríl og þar þvertók yfirmaður íþróttamála fyrir þetta. „Ég hef verið viðriðinn fótbolta í fjölda ára og þessi umræða hefur átt sér stað síðustu áratugi. Ég harðneita öllum ásökunum um mútur til barna í fótbolta“ sagði Sune Smith-Nielsen hjá FCK. Yfirmaður íþróttamála hjá Malmö, Per Agren, hefur nú stigið fram með nýjar ásakanir, í grein sem birtist í danska sunnudagsblaðinu Politiken. Þar segir hann FCK hafa mútað tveimur átta ára drengjum, eða fjölskyldum þeirra, og fengið þá til að ganga til liðs við félagið. Sömu aðferðum hafi verið beitt á fjölskyldu sjö ára drengs en hún lét ekki sannfærast. „FCK ætti ekki að einbeita sér að því að sækja leikmenn úr þessum aldurshópi og bjóða foreldrum beinlínis að flytja yfir Eyrarsundið. Sérstaklega þegar þessir leikmenn eru nú þegar í einni bestu akademíu Svíþjóðar“ sagði Per Agren hjá Malmö. FCK harðneitaði þessum nýju ásökunum þegar Bold leitaði viðbragða.
Danski boltinn Sænski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð Fótbolti Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Fleiri fréttir Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira