Augnablikin sem urðu að minni þjóðar Lestrarklefinn 18. desember 2025 09:32 Gunnar V. Andrésson fréttaljósmyndari hefur fangað söguleg augnablik þjóðarinnar í fimmtíu ár. Nú er komin út bók með myndum Gunnars sem Sigmundur Ernir Rúnarsson tók saman. Jana Hjörvar fjallar um bækur á menninarvefnum Lestrarklefinn. Hún tekur þar fyrir bók Gunnars V. Andréssonar og Sigmundar Ernis Rúnarssonar, Spegill þjóðar: fréttamyndir í fimmtíu ár og sagan á bak við þær. Jana hefur þetta að segja um bókina.
Það er eitthvað sérstakt við fréttaljósmyndir sem lifa lengur en sjálft dagblaðið eða fréttatíminn. Þær birtast aftur og aftur í blöðum, bókum, á fréttavefsíðum og eru svo orðnar að eins konar sameiginlegu minni okkar um ákveðna atburði. Það eru slíkar myndir sem prýða bókina Spegill þjóðar : fréttamyndir í fimmtíu árog sagan á bak við þær eftir Gunnar V. Andrésson og Sigmund Erni Rúnarsson. Sigmundur Ernir Rúnarsson Það kemur því ekki á óvart að bókin sé tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðibóka og rita almenns efnis. Fréttamyndir og saga þjóðar Gunnar V. Andrésson er einn af áhrifamestu fréttaljósmyndurum landsins og spannar ferill hans um hálfa öld. Margar af hans myndum eru orðnar táknmyndir í sögu þjóðarinnar. Myndir sem við grípum ósjálfrátt til þegar minnst er tiltekins atburðar eða tímabils. Í bókina hefur Gunnar valið á annað hundrað ljósmynda úr safni sínu og Sigmundur Ernir hefur tekið saman sögur Gunnars um þær og sett í lifandi, skýran texta. Bókin sjálf er vegleg og fallega hönnuð og pappírinn þannig að myndirnar fá að njóta sín. Uppsetning hennar er svo einföld og áhrifarík. Ein opna með einni mynd og einni sögu. Myndunum er raðað í tímaröð og fylgja ferli Gunnars frá hans fyrstu skrefum sem ungs ljósmyndara yfir í reyndan og snjallan ljósmyndara sem hefur fylgst með ýmsum viðburðum þjóðarinnar í gegnum árin. Þessi tímalína sem nær yfir fimmtíu ár gerir bókina að nokkurskonar myndrænni sögu þjóðar þar sem pólitík, mótmæli, gleði, sorg og hversdagslegt mannlíf mætist. Það sem gerir bókina svo sérstaklega skemmtilega er hvernig texti Sigmundar gefur enn meiri innsýn inn í sjálfar myndirnar. Jana Hjörvar fjallar um bækur í Lestrarklefanum Gunnar segir frá aðdraganda myndanna sem einkennist oft af tilviljunum, heppni, úthaldi eða jafnvel hreinum mistökum. Sigmundur grípur það og sníðir texta sem dýpkar samhengið og setur myndirnar inn í stærra, sögulegt landslag. Hver ljósmynd fær þannig aukna dýpt. Hún er ekki lengur bara stök mynd af einhverju viðfangsefni heldur hluti af frásögn um sögu fjölmiðla og samfélagið sjálft. Umfjöllunina í heild sinni má lesa hér. Fleiri ritdóma er að finna á Lestrarklefinn.is
Bókaútgáfa Menning Jól Mest lesið „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Lífið Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Síðasti leynigesturinn opinberaður Lífið Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Menning Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira