Mótið hálfnað og Guðrún Brá enn í góðri stöðu Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. desember 2025 16:17 Ríkjandi Íslandsmeistarinn er í góðum málum í Marokkó. Getty/Charles McQuillan Guðrún Brá Björgvinsdóttir var ein af fimm efstu kylfingunum þegar annar keppnisdagurinn af fjórum hófst á lokaúrtökumótinu í Marokkó fyrir Evrópumótaröðina í golfi, en féll aðeins niður listann í dag.
Guðrún Brá fór hringinn í gær á fimm höggum undir pari en hélt sér akkúrat á pari í dag, kláraði hringinn á 72 höggum og situr nú í nítjánda sætinu ásamt fimm öðrum. Hún er þó enn í mjög góðri stöðu því efstu tuttugu keppendurnir, eða fleiri ef kylfingar enda jafnir, fá fullan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á næsta ári. Skera þurfti einn keppnisdag af mótinu vegna veðurs þannig að úrtökumótið er nú hálfnað og næstu tveir dagar munu skera úr um hvort Guðrún eða hinir Íslendingarnir komist inn. Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir eru á pari eftir hringina tvo og sitja jafnar öðrum í 77. sæti. Hulda Clara Gestsdóttir er fimm höggum yfir pari eftir tvo hringi og situr í 132. sæti.
Golf Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira