Freyr himinlifandi með íslensku strákana Aron Guðmundsson skrifar 22. desember 2025 09:32 Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, er himinlifandi með íslensku leikmennina sína, Sævar Atla Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson Vísir/Samsett Freyr Alexandersson, þjálfari norska úrvalsdeildarfélagsins Brann, hrósar Íslendingunum tveimur sem hann sótti til liðsins í hástert. Það segi allt um hugarfar þeirra hvers fljótt þeim tókst að aðlagast Brann og Bergen og að láta til sín taka í Noregi.
Eggert Aron Guðmundsson og Sævar Atli Magnússon eru leikmennirnir sem um ræðir. Freysi hefur reynslu af Sævari Atla frá fyrri tíð með danska liðið Lyngby og Eggert Aron sótti hann frá Elfsborg í Svíþjóð þar sem tækifærin höfðu verið af skornum skammti. Brann endaði í fjórða sæti norsku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili en er í hörku samkeppni um sæti í umspili fyrir 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar. Brann liðið lenti í meiðslum undir lok tímabils í norsku úrvalsdeildinni og missti bæði Eggert og Sævar Atla í meiðsli á tímapunkti þar sem þeir höfðu látið vel til sín taka. „Frábær innkoma hjá þeim báðum,“ segir Freyr í samtali við íþróttadeild um það hvernig til tekist hefur hjá Íslendingunum hjá Brann. „Eggert Aron kom kannski hægt og rólega inn í þetta hjá okkur en setti samt sem áður sitt mark á liðið. Spilaði nánast fast frá fyrstu umferð. Mismunandi stöður sem hann hefur spilað, bæði vinstra og hægra megin á þriggja manna miðju en einnig á vinstri eða hægri kanti. Hann er frábær leikmaður taktískt lega séð, frábær pressu leikmaður. Endar með að vera lykilmaður hjá okkur með fimm mörk, fimm stoðsendingar og fimm lykilsendingar að mörkum. Hann var virkilega öflugur fyrir okkur.“ Sævar Atli kom á miðju tímabili þegar að félagsskiptaglugginn opnaði að nýju og það fór ekki fram hjá neinum. Hann hafði skorað fimm mörk í níu leikjum með Brann þegar að hann varð fyrir því óláni að meiðast í landsliðsverkefni með íslenska landsliðinu. „Sævar Atli kemur svo inn með þvílíkum hvelli. Skorar mörg mörk, er geggjaður í varnarleiknum okkar og mikill pressu maður. Small fullkomlega inn í liðið okkar, hann var búinn að vera stórkostlegur og hræðilegt að missa hann í meiðsli. Eggert missir ekki af mörgum leikjum en missir samt sem áður af tveimur til þremur leikjum og við fundum alveg fyrir því. Þeir koma bara sterkir inn á næsta ári hjá okkur, það ríkir mikil ánægja með þá báða.“ Það segi mikið um umrædda leikmenn hversu mikið þeir hafi geta látið til sín taka með Brann á tímabilinu, sínu fyrsta í norsku úrvalsdeildinni. „Eggert lendir í meiðslum sem leikmaður Elfsborg og svo spiluðu þeir fótbolta sem hentaði honum ekki vel. Svo kemur hann hingað, trúir á mig og fær kraft úr umhverfinu hér í Bergen og blómstrar. Svo er Sævar Atli bara tryggur hermaður. Hann gerir bara það sem maður biður hann um að gera. Það sem við mátum mest við þá þegar að við sækjumst eftir því að fá þá í okkar lið hér í Brann er persónuleikinn þeirra og hæfileikar, ekki endilega fastar leikstöður. Ég var alveg handviss um að þeir myndu smella vel inn í hlutina hjá okkur en ekki endilega svona hratt. Það segir allt um hugarfar þeirra hversu fljótt og vel þeim tókst að aðlagast hér. Stórkostlegt að fá þessa tvo drengi hérna inn.“
Norski boltinn Fótbolti Íslendingar erlendis Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira