Mbappé breytti um fagn af góðu tilefni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. desember 2025 15:31 Kylian Mbappe fagnaði sögulegu marki sínu með því heiðra Cristiano Ronaldo. Getty/Mateo Villalba Kylian Mbappé skráði nafn sitt enn á ný í metabækurnar á laugardaginn þegar hann jafnaði met Cristiano Ronaldos yfir flest mörk skoruð fyrir Real Madrid á einu almanaksári.
Þessi áfangi var næstum því runninn úr greipum franska framherjans þar til hann skoraði úr vítaspyrnu þegar aðeins fjórar mínútur voru eftir af leiknum og tryggði 2-0 sigur á tíu leikmönnum Sevilla í síðasta leik Real Madrid á árinu. Hann fagnaði afrekinu, sem hann náði í hús á 27 ára afmælisdegi sínum, með látlausri útgáfu af hinu þekkta „Siu“-fagni Ronaldos áður en hann sendi fingurkoss í átt að sjónvarpsmyndavélunum. MBAPPE EQUALS CRISTIANO RONALDO FOR THE MOST GOALS FOR REAL MADRID IN A CALENDER YEAR 🔥 pic.twitter.com/Bfs4bKlYl3— ESPN FC (@ESPNFC) December 20, 2025 „Þetta var sérstakur dagur,“ sagði Kylian Mbappé. „Við unnum leikinn, sem var mikilvægt því það var markmiðið. Hvað metið varðar, þá er ótrúlegt að á mínu fyrsta ári hafi ég náð því sem Cristiano gerði, besti leikmaður í sögu Real Madrid og fyrirmynd í heimsfótboltanum.“ „Þetta er heiður fyrir mig. Hann hefur alltaf sýnt mér hlýju, talað við mig um Real Madrid og hvernig ég ætti að aðlagast. Ég er mjög ánægður núna að skora mörk fyrir Real Madrid,“ sagði Mbappé. 🇵🇹 Cristiano Ronaldo in 2013:• 50 games• 59 goals• 14 assists🇫🇷 Kylian Mbappé in 2025:• 59 games• 59 goals• 6 assistsHISTORY REPEATED! 🤝 pic.twitter.com/1XZ86fOpAz— Madrid Zone (@theMadridZone) December 20, 2025 „Fagnið var fyrir hann. Ég er yfirleitt með mitt eigið fagn, en ég vildi deila því með honum í dag. Hann var átrúnaðargoðið mitt þegar ég var krakki, ég á gott samband við hann og nú er hann vinur minn,“ sagði Mbappé. Fyrrum stjarna Paris Saint-Germain, sem gekk til liðs við Madrid sumarið 2024, hefur skorað 29 mörk fyrir Madrid í öllum keppnum á þessu tímabili. Mbappé er þar einu marki á eftir Harry Kane hjá Bayern München yfir flest mörk skoruð af leikmanni úr félagi í fimm efstu deildum Evrópu. View this post on Instagram A post shared by MARCA (@marca)
Spænski boltinn Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Sjá meira