Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Sindri Sverrisson skrifar 22. desember 2025 21:59 Raul Jimenez brosti breitt eftir að hafa komið Fulham yfir. Getty/Julian Finney Fulham vann sinn annan sigur í röð í kvöld þegar liðið hafði betur gegn Nottingham Forest, 1-0, í lokaleik 17. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.
Mexíkóinn Raul Jimenez skoraði sigurmark leiksins úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks. Spyrnan var dæmd þegar Douglas Luiz braut á Kevin innan teigs. Jimenez hefur nú skorað úr öllum ellefu vítaspyrnum sínum í ensku úrvalsdeildinni en vítaspyrna hans var eina skotið sem hitti markrammann í fyrri hálfleiknum. Fjörið var ekki mikið meira í seinni hálfleik en þó kom til lítils háttar hópátaka sem lauk með því að Jorge Cuenca og Nikola Milenkovic fengu báðir gult spjald. Forest tókst aldrei að gera mikla atlögu að því að jafna metin og heimamenn fögnuðu þremur stigum. Þar með er Fulham í 13. sæti með 23 stig en Forest situr eftir í 17. sæti með 18 stig, fyrir ofan fallsætin þrjú. Enn eru þó fimm stig í næsta lið fyrir neðan Forest sem er West Ham. Forest á erfiðan leik fyrir höndum næsta laugardag, gegn Manchester City á heimavelli, en Fulham sækir West Ham heim í Lundúnaslag.
Enski boltinn Mest lesið Þrír látnir í skotárás á íshokkísleik: „Hugsanlega vegna fjölskylduerja“ Sport Sögð þéna milljónir á því að sýna brjóstahaldarann á Ólympíuleikunum Sport Dagskráin í dag: Meistaradeild Evrópu og risaslagur í Bónus deildinni Sport Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Enski boltinn Sögulegur áfangi Örnu sem brýtur blað í íþróttasögu Íslendinga Sport Mætir með medalíu af ÓL í jarðarför föður síns Sport „Við vitum hvað við gerðum við konunga Meistaradeildarinnar“ Fótbolti „Ég er ekki kærastan“ Sport Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Enski boltinn „Við erum heppin að hafa leikmann eins og Trent“ Fótbolti Fleiri fréttir Lærisveinar Lampard höfðu betur í toppslagnum Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Sjá meira