Sport

Dag­skráin: Doc Zone í jóla­skapi, fullt af leikjum í enska og HM í pílu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hjörvar Hafliðason og félagar verða örugglega í jólaskapi í Doc Zone í dag.
Hjörvar Hafliðason og félagar verða örugglega í jólaskapi í Doc Zone í dag. Sýn Sport

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á laugardögum.

Þetta er stór dagur í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og heimsmeistaramótið í pílukasti fer aftur af stað eftir stutt jólafrí.

Sjö leikir verða sýndir beint í ensku úrvalsdeildinni í dag. Dagurinn byrjar á leik Nottingham Forest og Man. City, Liverpool og Arsenal eru bæði að spila klukkan þrjú og dagurinn endar með stórleik Chelsea og Aston Villa.

Doc Zone verður að sjálfsögðu á sínum stað þar sem fylgst verður með öllum fótboltanum á sama tíma, hvort sem hann er spilaður í Englandi eða í Evrópu. Laugardagsmörkin gera síðan allan daginn upp. Þátturinn verður að sjálfsögðu í sérstöku jólaskapi í dag og það er líka nóg af flottum leikjum í gangi á meðan þátturinn er í loftinu.

Þriðja umferðin á heimsmeistaramótinu í pílukasti byrjar í dag en þar keppa 32 bestu pílukastararnir um sæti í sextán manna úrslitum. Jonny Clayton er að spila í hádegishlutanum í dag og þeir Luke Littler og Stephen Bunting eru báðir að spila sinn leik í þriðju umferðinni í kvöld.

Í kvöld verður einnig sýndur Íslandsmeistaraþátturinn um kvennalið Breiðabliks í fótbolta sem vann tvöfalt síðasta sumar.

Það verður ekki bara fótbolti og pílukast í beinni í dag því það verður einnig sýndur leikur Los Angeles Chargers og Houston Texans í NFL-deild ameríska fótboltans og kvöldið endar með leik í NHL-deildinni í íshokkí.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 21.40 hefst þáttur um kvennalið Breiðabliks sem varð Íslandsmeistari í Bestu deild kvenna í fótbolta 2025.

Sýn Sport

Klukkan 14.40 hefst Doc Zone þar sem Hjörvar Hafliðason og félagar fylgjast með gangi mála í enska boltanum.

Klukkan 17.20 hefst bein útsending frá leik Chelsea og Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Klukkan 21.30 hefst bein útsending frá leik Los Angeles Chargers og Houston Texans í NFL-deildinni.

Sýn Sport 2

Klukkan 14.40 hefst bein útsending frá leik Liverpool og Wolves í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Klukkan 17.05 hefjast Laugardagsmörkin þar sem farið verður yfir leiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Sýn Sport 3

Klukkan 14.40 hefst bein útsending frá leik Arsenal og Brighton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 4

Klukkan 14.50 hefst bein útsending frá leik Brentford og Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 5

Klukkan 14.50 hefst bein útsending frá leik West Ham og Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 6

Klukkan 14.50 hefst bein útsending frá leik Burnley og Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

SÝN Sport Viaplay

Klukkan 12.25 hefst bein útsending frá heimsmeistaramótinu í pílukasti.

Klukkan 18.55 hefst bein útsending frá heimsmeistaramótinu í pílukasti.

Klukkan 00.05 hefst bein útsending frá leik Buffalo Sabres og Boston Bruins í NHL-deildinni í íshokkí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×