Gray hetja Tottenham

Valur Páll Eiríksson skrifar
Gray skoraði eina mark leiksins.
Gray skoraði eina mark leiksins. Vince Mignott/MB Media/Getty Images

Tottenham var án bæði Cristian Romero og Xavi Simons sem voru í leikbanni og þá eru Pape Matar Sarr og Yves Bissouma í Afríkukeppninni. Þrátt fyrir fjarveru þeirra var Tottenham sterkari aðilinn á Selhurst Park í kvöld.

Richarlison virtist koma Spurs yfir eftir rúmlega stundarfjórðungsleik en myndbandsdómari dæmdi markið af.

Undir lok fyrri hálfleiks tók Pedro Porro hornspyrnu sem fann höfuð Richarlison. Hann skallaði boltann inn á teiginn þar sem Archie Gray skallaði boltann í netið af stuttu færi.

Staðan var 1-0 í hálfleik fyrir Tottenham en í seinni hálfleik dæmdi myndbandsdómari annað mark af Richarlison sem átti ekki að fá að skora í dag.

Það breytti litlu um niðurstöðuna. Tottenham vann leikinn 1-0 og er með 25 stig í ellefta sæti. Crystal Palace er í níunda sæti með 26 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira