Aldrei spilað þarna en sagði strax já Sindri Sverrisson skrifar 27. desember 2025 20:16 Viktor Gyöekeres og Declan Rice glaðbeittir eftir að hornspyrna Rice fór af Brighton-manni og í netið. Getty/Shaun Botterill Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var hæstánægður með hugarfar Declan Rice og annarra leikmanna sinna í 2-1 sigrinum gegn Brighton í dag og sagði þá hafa verðskuldað mun stærri sigur.
Arsenal leyfði Manchester City bara að vera á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í stutta stund og kom sér þangað aftur með sigrinum gegn Brighton. Martin Ödegaard skoraði fyrra mark Arsenal og Georginio Rutter skoraði svo sjálfsmark á 52. mínútu, eftir hornspyrnu Rice, en Brighton kom sér inn í leikinn að nýju með marki frá Diego Gómez á 64. mínútu, nánast upp úr þurru. „Munurinn hefði átt að vera mun, mun meiri miðað við stöðurnar sem við sköpuðum. Ég held að þetta hafi verið fyrsta skotið þeirra, sem þeir skoruðu úr, en þannig er líka úrvalsdeildin,“ sagði Arteta í viðtali sem sjá má hér að neðan. Klippa: Arteta eftir sigurinn gegn Brighton Hann var spurður út í það að láta Rice spila sem hægri bakvörður, vegna manneklu: „Hann hefur aldrei spilað í þeirri stöðu. Ég spurði hann fyrir 48 klukkutímum og hann sagði strax já. Þegar við lendum í erfiðleikum þá eru leikmennirnir alltaf klárir í að græja málin,“ sagði Arteta. Þó að Brighton hafi lítið skapað í leiknum þá reyndi eitt sinn verulega á David Raya í markinu. „Það skapaði svolitla óvissu [að Brighton skyldi minnka muninn í eitt mark]. Í stöðunni 2-1 og með þau gæði sem þeirra leikmenn hafa þá var þetta aldrei búið spil. [Markvarsla Raya] var stórkostleg. Ég sá það vel þar sem ég var. Við þurfum svona frammistöður á stórum augnablikum,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Arsenal FC Mest lesið „Ég er ekki kærastan“ Sport Sögð þéna milljónir á því að sýna brjóstahaldarann á Ólympíuleikunum Sport „Ung kona vinnur gull og verður fyrir fordómum og niðurlægingu“ Sport Typpið í lagi en skórnir of stórir Sport Sögulegur áfangi Örnu sem brýtur blað í íþróttasögu Íslendinga Sport Klúðraði gullinu, henti frá sér öllu lauslegu og strunsaði út í skóg Sport Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Fótbolti Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Enski boltinn Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Enski boltinn Jón Erik náði 25. sætinu með frábærri seinni ferð Sport Fleiri fréttir Chelsea og Manchester United hafi spurst fyrir um Klopp Hákon hélt hreinu er Brentford sló út spútnik liðið Dregið í enska bikarnum: Chelsea heimsækir Hollywood lið Wrexham Heldur ævintýri Rooney og lærisveina hans í Macclesfield áfram í kvöld? Kemur til varnar liðsfélaga sínum hjá Liverpool Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara „Tottenham er ekki stór klúbbur“ Laskað topplið missti niður forystu gegn Brentford Sjá meira