Hvetja fólk til að plokka flugeldarusl á nýársdag Lovísa Arnardóttir skrifar 30. desember 2025 15:02 Ragnhildur Katla segir fólk geta farið út í garð eða gengið sína götu til að plokka flugeldarusl. Aðsend og Vísir/Arnar Landvernd, Ungir umhverfissinnar og sjálfboðaliðasamtökin Seeds Ísland boða til átaks á nýársdag til að plokka flugeldarusl. Átakið ber nafnið glitter, no litter, sem mætti þýða sem glimmer en ekkert rusl og vísar til flugeldanna sem verða sprengdir upp um áramót.
Ragnhildur Katla Jónsdóttir upplýsingafulltrúi Landverndar segir átakið skipulagt af samtökunum þremur og nafnið komið frá sjálfboðaliðum í Seeds sem séu flestir erlendir. „Flugeldarnir eru enn þá partur af samfélaginu og magnið hefur aukist undanfarin ár. Því er best að líta upp og njóta ljósanna meðan á þeim stendur. Varðandi ruslið daginn eftir erum við hins vegar með fullkomna leið fyrir þig til að byrja nýja árið með stæl,“ segir Ragnhildur Katla en átakið hefst formlega klukkan 14 á nýársdag. Í viðburði eru teknir fram fjórir söfnunarstaðir þar sem fólk getur hist. Við Laugardalslaug, Flókagötu/Kjarvalsstaði í Reykjavík, Borgarholt í Kópavogi og Fjarðargötu í Hafnarfirði. „Það er viss fegurð í hefðinni að skjóta upp flugeldum til að sýna að nú sé gamla árið farið, sprengt, búið, bless og að þá sé hægt að taka nýju ári með opnum örmum. En sú fegurð varir ekki lengi því daginn eftir vakna íbúar þéttbýlissvæða í rykmökk og við götur þaktar papparusli,“ segir í tilkynningu frá Landvernd um málið. Fólk er hvatt til að skella sér út að plokka á nýársdag.Aðsend Þar segir að hjálparsveitir landsins vinni óeigingjarnt starf til að tryggja öryggi fólks en að það sé áhugaverð fjármögnunarleið að selja flugelda til þess að tryggja fjármagn fyrir starfinu. „Flugeldar eru hins vegar áhugaverð fjármögnunarleið þar sem um 20 einstaklingar slasast á ári, náttúran sem þeir vinna svo náið með breytist ört vegna loftslagsáhrifa mengunar, svifryk skaðar heilsu almennings og sprengjurusl þekur opin svæði og götur. Það myndi í rauninni hjálpa björgunarsveitinni mun meira að kaupa rótarskot í stað flugelda og stuðla að heilnæmu umhverfi og öryggi landsmanna,“ segir í tilkynningunni. Þó flugeldarnir séu fallegir fylgir þeim töluverð loft- og umhverfismengun.Vísir/Vilhelm Hægt að sameinast nærsamfélagi Ragnhildur Katla segir marga setja sér áramótaheit um meiri samveru og heilsueflingu sem hægt sé að sameina í þessu átaki á nýársdag. „Það er hægt að kíkja bara í garðinn sinn eða götuna. Um leið og það kemur vindur er það meira vandamál,“ segir hún og að í botninum á tertunum sé leir sem verði að drullu þegar byrji að rigna. Þess vegna sé best að taka þær áður en þær blotna og áður en ruslið fýkur á haf út. „Allt rusl í umhverfinu okkar sem fer út á götu fer alltaf eitthvert, ef það er ekki tekið upp af okkur er mjög líklegt að það endi út í sjó,“ segir hún. Flugeldagámar verða á þessum staðsetningum. Auk þess verður hægt að skila flugeldarusli til Sorpu.Sorpa Eiga ekki heima í ruslinu Hún segir að þegar fólk er búið að tína ruslið upp séu sveitarfélögin búin að koma upp sérstökum gámum fyrir ruslið. „Flugeldar eiga ekki heima í venjulegum ruslatunnum. Þetta getur stundum verið hættulegur úrgangur. Þannig að þeir þurfa alltaf að fara í sérstaka gáma,“ segir hún og að söfnunarstaðirnir sem skipulagðir eru í tengslum við viðburðinn séu nálægt þessum gámum.
Flugeldar Áramót Umhverfismál Loftslagsmál Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Eftirlýstur og með vopn á sér Innlent Fleiri fréttir Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Sjá meira