Segir dómarana bara hafa verið að giska Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. desember 2025 11:33 Hurzeler segir ómögulegt að sjá hvort þetta hafi verið hendi. Jordan Pettitt/PA Images via Getty Images Fabian Hurzeler, þjálfari Brighton í ensku úrvalsdeildinni, er allt annað en ánægður með ákvarðanatöku dómaranna í 2-2 jafntefli liðsins gegn West Ham í gærkvöldi.
Leikurinn var mikill vítaleikur en alls þrjár vítaspyrnur voru dæmdar og skorað úr tveimur þeirra. Fyrirliði Brighton, miðvörðurinn Lewis Dunk, var ásakaður um að hafa handleikið boltann rétt fyrir hálfleik og vítaspyrna var dæmd, eftir að dómaranum Stuart Attwell var sagt að skoða atvikið aftur í VAR skjánum. Lucas Paqueta skoraði svo úr spyrnunni og kom West Ham 2-1 yfir en Brighton tókst að jafna í seinni hálfleik. Atvikið má sjá eftir um eina og hálfa mínútu í spilaranum hér fyrir neðan. „Það getur enginn sagt að þetta hafi verið augljós hendi og VAR myndbandið er ekki nógu skýrt, þannig að þetta er bara ágiskun og við eigum að vera besta deild í heimi. Að taka svona ákvörðun út frá ágiskun, þetta á ekki að gerast“ sagði Fabian Hurzeler, þjálfari Brighton, eftir leik. Fabian Hurzeler var ósáttur við dómarana og vítadóminn. Robin Jones - AFC Bournemouth/AFC Bournemouth via Getty Images Hann hafði þó ekki mikið að segja um vítaspyrnuna sem Danny Welbeck vippaði í slánna í fyrri hálfleik, nokkrum mínútum eftir að hafa skorað örugglega úr fyrri vítaspyrnu Brighton. „Danny tók sína ákvörðun, ef hann hefði gert þetta vel hefðu allir sagt: Vá, þvílíkt víti. Hann nýtur okkar stuðnings og hefur hjálpað okkur heilmikið á tímabilinu“ sagði Hurzeler. Þetta var í annað sinn í desember sem Brighton gerir jafntefli við West Ham og Mávarnir hafa nú farið sex leiki í röð án sigurs en þeir sitja í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Enski boltinn Brighton & Hove Albion West Ham United Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Íslenski boltinn Flestir Íslendingar halda með Liverpool Enski boltinn „Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Sport Fleiri fréttir Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Brentford taplausir eftir sigur á bitlausu liði Chelsea Richarlison hafnaði Vasco da Gama: „Við reyndum allt“ Flestir Íslendingar halda með Liverpool Ngumoha, Palmer og Alexander-Arnold í hópnum sem mætir Spáni Isak bjartsýnn: „Myndi aldrei hugsa þannig“ Ungstirni Manchester City tryggðu liðinu stórsigur Tætti í sig fulltrúa ungstirnisins: „Hvernig eruð þið að hugsa um þennan strák?“ Boehly selur og kveður Chelsea Sunderland vann í fyrsta Evrópuleiknum síðan 1973 Enn eitt áfallið fyrir Manchester United Stórlaxarnir á eftir vonarstjörnu Manchester United sem vill burt Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Raheem Sterling játar sök Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Leedsarar léku sér að Newcastle VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Goðsögn hjá West Ham fallin frá „Eins og þeir séu hræddir við að vinna“ Hafþór lét Haaland líta út eins og smástrák Rio betri en Barcola: „Ekki þess virði sem þeir keyptu hann á“ Sjáðu ólöglega sigurmarkið og rauðu spjöldin „Markið hefði ekki átt að standa“ Myndbandsdómgæsla gerði mistök í sigurmarki Haaland Sjá meira