Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Bjarki Sigurðsson skrifar 6. janúar 2026 11:45 Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir frumvarpið á leiðinni. Vísir/Anton Brink Seinna á árinu munu íbúðareigendur aftur geta ráðstafað séreignarsparnaði inn á íbúðarlán segir fjármálaráðherra. Sem stendur býðst íbúðareigendum ekki að nýta sér leiðina en unnið er að frumvarpi í ráðuneytinu.
Árið 2014 var samþykkt að tímabundið gætu fasteignaeigendur lagt séreignarsparnað skattfrjálst inn á höfuðstól fasteignaláns. Gildistími úrræðisins hefur verið framlengdur nokkrum sinnum síðan þá, alltaf til skamms tíma í senn. Í október í fyrra tilkynnti ríkisstjórnin að festa ætti úrræðið í sessi svo allir gætu nýtt sér heimildina í tíu ár og stuðla þannig að auknum fyrirsjáanleika. Því brá mörgum í brún þegar Skatturinn sendi tilkynningu á gamlársdag um að heimildin væri útrunnin. Frá og með 1. janúar væri ekki hægt að sækja um nýtinguna. Afturvirkt frá áramótum Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina ekki vera að ganga á bak orða sinna. „Frumvarpið er ekki komið fram. Það er í vinnslu í fjármálaráðuneytinu. Þetta var ákvörðun sem var tekin seint á þinginu. Þegar þessi lög verða sett verða þau sett með afturvirkum hætti, þannig að þeir sem eiga rétt á þessari endurgreiðslu munu fá hana frá áramótum. En það verður ekki mögulegt að sækja um fyrr en það eru komin lög sem styðja það,“ segir Daði. Stutt í frumvarpið Hann telur að frumvarpið muni líta dagsins ljós snemma á árinu, í febrúar eða mars. „Ákvörðunin er tekin frekar seint og það þarf að vinna frumvarpið. Það er leyst með þessum hætti. Enginn á að bíða af þessu neitt tjón. Þegar þetta er orðið að lögum mun það gilda frá áramótum,“ segir Daði.
Neytendur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fasteignamarkaður Lánamál Viðreisn Fjármál heimilisins Mest lesið Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Fleiri fréttir Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira