Enn í útlegð en hvert getur hann farið? Valur Páll Eiríksson skrifar 6. janúar 2026 22:47 Raheem Sterling hefur ekki leikið fótbolta í Chelsea búning síðan árið 2024. Hann var á láni hjá Arsenal í fyrra en Skytturnar ákváðu að fá hann ekki til liðsins eftir þá skömmu dvöl. Áður hefur hann leikið fyrir Manchester City og Liverpool. Vísir/Getty Raheem Sterling hefur æft með varaliði Chelsea í allt haust. Hann situr þar með sín 300 þúsund pund í vikulaun og gæti gefið einhverja seðla eftir til að komast aftur á fótboltavöllinn.
Sterling var settur til hliðar af stjórnendum hjá Chelsea í sumar og litlar líkur eru á breytingum varðandi hans stöðu þrátt fyrir ráðningu nýs þjálfara í Liam Rosenior. Þeir sem völdin hafa hjá félaginu vilja kantmanninn á brott en þeir hafa greitt honum 300 þúsund pund í vikulaun þá tæpu 21 viku sem liðin er á leiktíðina fyrir það eitt að æfa með varaliðinu. Það gera 6,3 milljónir punda og ljóst að menn hjá Chelsea vilja síður setja mikið fleiri milljónir í vasa Sterlings fyrir ekkert framlag. Sterling er með samning út næstu leiktíð, til sumarsins 2027. Chelsea vill losna við hann á láni, líkt og liðið gerði í fyrra til Arsenal, eða selja hann. Það gæti reynst strembið að losna við Sterling enda virði hans fallið mjög. Það liggur fyrir að ekkert félag í heiminum er reiðubúið að greiða honum 300 þúsund pund á viku en Chelsea gæti þá þurft að greiða hluta launa hans ef hann fer á lán. Samkvæmt The Athletichefur Sterling hins vegar lítinn áhuga á því. Hann vilji frekar semja alfarið við nýtt lið. Þá liggur fyrir að hann mun þurfa að gefa eftir einhverjar milljónir, ætli hann sér að snúa aftur á fótboltavöllinn í bráð.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Áfram skorar Andri Lucas „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Sjá meira