Laus við tvo endajaxla og skrúfu úr hnénu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2026 08:02 Sara Sigmundsdóttir er spennt fyrir nýju ári og það verður fróðlegt að sjá hvort hún haldist heil og hversu langt hún getur náð í endurkomu sinni. @sarasigmunds „Ávöxtum sáð en engin uppskera enn þá,“ skrifaði Sara Sigmundsdóttir í áramótafærslu sinni. Það eru margir sem bíða spenntir eftir því hvort henni takist að komast aftur í hóp þeirra bestu í CrossFit-íþróttinni.
Það er í það minnsta enginn uppgjafartónn í Söru Sigmundsdóttur þrátt fyrir erfiðleika síðustu ára og íslenska CrossFit-konan er spennt fyrir komandi keppnisári sem eru mjög jákvæðar fréttir. Sara gerði upp síðasta ár með myndasyrpu og nokkrum lofandi orðum á samfélagsmiðlum. „Tvö ný lönd, fimm keppnir, einn stór ótti yfirstiginn, fullt af nýju fólki, tveimur endajaxlum færra, engin skrúfa lengur í hnénu, byrjuð aftur í námi og síðast en ekki síst fullt af nýjum stofnfrumum í hnénu,“ skrifaði Sara. „Nauðsynleg klipping, óvæntar breytingar,“ bætti hún við. „Þakklát fyrir hverja lexíu, hverja baráttu, hverja manneskju og hvert tækifæri. Takk, 2025. Ég er spennt að sjá hvað 2026 hefur upp á að bjóða,“ skrifaði Sara. „Skálum fyrir því að læra af fortíðinni, setja ný áform/markmið fyrir þetta ár, treysta ferlinu, halda í agann og mæta fyrir sjálfa/n þig á hverjum einasta degi á öllum sviðum,“ skrifaði Sara nokkrum dögum fyrr eða við áramótin. Það eru fleiri að sjá hvort Söru takist að komast á sína fyrstu heimsleika í sex ár. Þangað er þó löng og erfið leið þar sem samkeppnin er mikil. Líkt og kemur vel fram í athugasemdunum við færsluna þá á Suðurnesjamærin aðdáendur út um allan heim og takist henni að fullkomna endurkomuna með því að tryggja sig inn á heimsleikana þá myndu margir fagna. Ekki bara á Íslandi heldur út um allan heim. View this post on Instagram A post shared by Sara Sigmundsdóttir (@sarasigmunds)
CrossFit Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Báðir þurfa bikar Enski boltinn „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Handbolti Fleiri fréttir Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Rodman í heiðurshöll WWE Brobbey braut hjörtu svarthvítra Tottenham - Nott. Forest | Bæði lið að berjast fyrir lífi sínu Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Friðrik Leó áfram en Birgir Leifur úr leik í Marsfárinu Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City „Hellings tækifæri fyrir unga menn úti á landi“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Ármann fékk skell í kveðjugjöf Tryggvi fagnaði eftir trylli í Pýreneafjöllum Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Ósáttur við sóknina í fyrri hálfleik: „Fannst við of hægir og staðir“ Hamar/Þór - Keflavík 88-85 | Keflavík fékk Hamarshögg í Þorlákshöfn „Getum ekki alltaf spilað á sama liðinu“ Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Magnaður sigur Elísu og brautarmet á Ítalíu Uppgjörið: Ísland - Svíþjóð 27-30 | Gamlir draugar létu á sér kræla Sjá meira