Fékk gjöf frá Karólínu Leu um leið og hún kom úr erfiðri geislameðferð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2026 08:34 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og Þóra með treyjuna umræddu. @orrirafn11 Íslenska landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir vildi gleðja unga stelpu sem er að berjast við krabbamein.
Þóra var að ljúka geislameðferð í Svíþjóð þar sem hún stóð sig eins og hetja. Við komuna heim beið hennar árituð treyja frá Karólína Leu og glæsilegir takkaskór í kaupbæti. Internazionale-treyjan var auðvitað númer átta og merkt Vilhjálmsdóttir að aftan. Karólína Lea vildi að hún fengi treyjuna og skóna strax þegar hún kæmi heim eftir erfiða meðferð til að sýna henni stuðning. Orri Rafn Sigurðarson segir frá þessu á samfélagsmiðlum sínum og birtir mynd af Þóru en hann stendur fyrir góðgerðarverkefninu „Gleðjum saman“. Þóra með treyjuna og skóna.@orrirafn11 Karólína ætlar síðan að hitta Þóru í næsta landsleikjaverkefni en núna er hún komin aftur til Ítalíu þar sem hún spilar sem atvinnumaður hjá ítalska stórliðinu Internazionale. Íslenska landsliðið spilar næst tvo útileiki í marsmánuði en svo eru tveir heimaleikir með fjögurra daga millibili í apríl á móti Úkraínu ( 14. apríl) og Englandi ( 18. apríl). Karólína Lea verður þar væntanlega í stóru hlutverki en hún varð bæði markahæst og stoðsendingahæst hjá íslenska landsliðinu á árinu 2025. Verkefnið „Gleðjum saman“ átti að vera sex til átta treyjur og gert til að skapa smá jákvæðni í kringum íþróttahreyfinguna og sýna samstöðu og sameingarkraft þeirra fyrir jólin. „Verkefnið hefur síðan þá breyst í eitt allra skemmtilegasta og mest gefandi verkefni sem ég hef komið að eða tekið þátt í,“ skrifar Orri Rafn en yfir fimmtíu treyjur eru skráðar í verkefnið og af þeim voru 33 áritaðar treyjur afhentar í eigin persónu af leikmönnum. Orri er líka alltaf að leita að fleiri flottum einstaklingum og tilnefningum til halda áfram að koma færandi hendi í framtíðinni.
Landslið kvenna í fótbolta Ítalski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Fleiri fréttir Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Sjá meira