TikTok í fyrsta sæti á HM í fótbolta í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. janúar 2026 14:02 Lionel Messi með heimsbikarinn í Katar 2022 en FIFA hefur valið TikTok sem aðalvettvang sinn fyrir myndefni á samfélagsmiðlum á heimsmeistaramóti karla í fótbolta næsta sumar. Getty/Marcelo Endelli Alþjóðaknattspyrnusambandið hefur valið TikTok sem aðalvettvang sinn fyrir myndefni á samfélagsmiðlum á heimsmeistaramóti karla í fótbolta næsta sumar en knattspyrnusambandið gaf þetta út í gær.
Samstarfið á HM mun veita efnishöfundum sérstakan aðgang að mótinu, sem telur 48 þjóðir og er haldið í sextán borgum, ellefu í Bandaríkjunum, þremur í Mexíkó og tveimur í Kanada, frá 11. júní til 19. júlí 2026. FIFA sagði að handhafar útsendingarréttar HM geti streymt hlutum úr leikjunum 104 í beinni útsendingu á sérstakri miðstöð í TikTok-appinu, sem hefur yfir 170 milljónir notenda í Bandaríkjunum. TikTok, one of the planet’s most influential and dynamic destinations for mobile video content, will become FIFA’s first-ever Preferred Platform. The innovative partnership between FIFA and TikTok is set to bring millions of fans even closer to the action and excitement at the… pic.twitter.com/ntXLIJm7Ba— FIFA Media (@fifamedia) January 8, 2026 „Auk þess mun stór hópur efnishöfunda fá tækifæri til að nota og taka þátt í að búa til efni úr skjalasafni FIFA,“ sagði FIFA í tilkynningunni. Sögðu ekki frá verðmæti samningsins FIFA tilgreindi ekki verðmæti samningsins, né upplýsingar um útboðsferli eða samkeppnisaðila. YouTube var með minni háttar styrktarsamning sem fól í sér aðgang fyrir efnishöfunda á HM 2022 í Katar. FIFA tilgreindi heldur ekki hvers konar efni í beinni útsendingu verður hægt að streyma á þessu ári, á móti þar sem einkaréttur viðskiptaaðila er auðvitað stranglega varinn. Samstarf TikTok við MLS-deildina og Apple TV leiddi meðal annars til þess að vettvangurinn birti myndefni úr myndavélum sem voru eingöngu tileinkaðar því að fylgjast með fótboltagoðsögninni Lionel Messi spila í leikjum fyrir Inter Miami. Fá að sjá bak við tjöldin FIFA lofaði aðdáendum að þeir fengju að sjá á bak við tjöldin og vera nær hasarnum en nokkru sinni fyrr en það staðfesti aðalritari sambandsins, Mattias Grafström. TikTok varð mest niðurhalaða símaapp í heimi á sama tíma og því stóð ógn af því að vera lokað í Bandaríkjunum vegna þjóðaröryggis. Í desember samþykkti ByteDance, móðurfyrirtæki TikTok í Kína, að stofna bandarískt samrekstrarfyrirtæki með fjárfestunum Oracle, Silver Lake og MGX. Áætlað er að gengið verði frá þeim samningi síðar í þessum mánuði.
HM 2026 í fótbolta TikTok Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjá meira