Minntust nýlátins félaga og foreldrarnir mættu í klefann Sindri Sverrisson skrifar 11. janúar 2026 08:02 Isaac Buckley-Ricketts og Paul Dawson voru skælbrosandi eftir sigurinn ótrúlega, þó að síðustu vikur hafi verið erfiðar fyrir alla hjá Macclesfield. Getty/Michael Regan Ethan McLeod, sem lést í bílslysi aðeins 21 árs gamall rétt fyrir jól, var Macclesfield-mönnum hugleikinn þegar þeir fögnuðu hreint ótrúlegum sigri utandeildarliðsins á ríkjandi bikarmeisturum Crystal Palace, í ensku bikarkeppninni í fótbolta í gær. „
Ég hugsaði það með mér þegar lokaflautið gall. Ethan var hérna í dag,“ sagði Isaac Buckley-Ricketts, maðurinn sem skoraði seinna mark Macclesfield í 2-1 sigrinum gegn Palace í gær, áður en hann fékk hreinlega kökk í hálsinn. "I was thinking about it when the final whistle went, Ethan was here" ❤️Isaac Buckley-Ricketts dedicates Macclesfield FC's victory over Crystal Palace to Ethan McLeod who sadly passed away last month. 🎙️ @OliviaBuzaglo | 📺 @tntsports & @discoveryplusUK pic.twitter.com/fXyQhnLQa3— Football on TNT Sports (@footballontnt) January 10, 2026 McLeod lést þann 17. desember síðastliðinn. Fyrsta leik Macclesfield eftir andlát hans var frestað en liðið hafði svo þurft að spila þrjá deildarleiki áður en kom að bikarleiknum í gær. John Rooney, þjálfari Macclesfield og bróðir Wayne Rooney, minntist einnig McLeod bæði fyrir og eftir leik. Þá voru foreldrar McLeod sérstakir gestir á leiknum í dag og komu inn í búningsklefa eftir leik til þess að faðma liðsfélaga sonar síns og óska þeim til hamingju. Ethan McLeod’s parents join players and staff in the dressing room after Macclesfield FC's historic win ❤️📺 @tntsports & @discoveryplusUK pic.twitter.com/UKo0Dh4EVo— Football on TNT Sports (@footballontnt) January 10, 2026 „Ég fékk hann til liðsins og heillaðist að honum frá fyrsta degi. Hann var algjör demantur – lífið og sálin í búningsklefanum. Hann var alltaf með bros á vör,“ sagði þjálfarinn John Rooney í aðdraganda leiksins. Robert Smethurst, eigandi Macclesfield, sagði að leikmenn hefðu með sigrinum á Palace unnið sér inn ferð í sólina á Ibiza. Hann var sömuleiðis í hópi þeirra sem minntust McLeod sérstaklega. „Ethan hjálpaði okkur rosalega við að komast hingað og ég get aldrei fyllilega þakkað honum og hans fjölskyldu,“ sagði Smethurst. Það verður svo að koma í ljós hvaða mótherji bíður Macclesfield í 32-liða úrslitunum en áfram verður spilað í enska bikarnum í dag og á morgun.
Enski boltinn Mest lesið Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Enski boltinn „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Enski boltinn Infantino beðinn um að mæta ekki á barnamót sem FIFA fjármagnar Fótbolti Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Tvöfaldur heimsmeistari látinn eftir skotárás Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Fótbolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Fleiri fréttir Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Brentford - Tottenham | Lundúnaslagur í fyrstu umferð Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Sjá meira