Enski boltinn

Glæsi­mark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Jack Clarke tryggði Ipswich sigur gegn sínum gömlu félögum.
Jack Clarke tryggði Ipswich sigur gegn sínum gömlu félögum. Visionhaus/Getty Images

Nýliðar Ipswich Town fögnuðu 2-1 sigri gegn Sunderland í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Sunderland skoraði glæsilegt jöfnunarmark en Jack Clarke tryggði Ipswich stigin þrjú á lokamínútunni.

Sunderland byrjaði leikinn betur og Brian Brobbey komst í fyrsta dauðafæri leiksins en var stöðvaður með rennitæklingu. Tæklingin virtist hafa vakið nýliða Ipswich sem fóru að spila betur.

Emersonn kom Ipswich svo yfir á 24. mínútu leiks eftir frábæran sprett hjá Julio Enciso, sem sprengdi upp völlinn og gaf góða stoðsendingu.

Sunderland svaraði fyrir sig þegar liðið fékk aukaspyrnu á 39. mínútu. Nilson Angulo stillti sér upp og lét þrumuskot vaða, sem small af slánni og inn.

Nilson Angulo skoraði glæsilegt aukaspyrnumark. Richard Pelham/Getty Images

Það dró ekki aftur til tíðinda fyrr en á lokamínútu leiksins, þegar Jack Clarke skoraði sigurmarkið fyrir Ipswich gegn sínum fyrrum félögum í Sunderland, eftir stoðsendingu Sasa Lukic.

Því miður fyrir nýliðana þurftu þeir að horfa á eftir Julio Enciso fara af velli vegna meiðsla. Vonandi fyrir þá verður hann ekki lengi frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×