Baltasar Samper látinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. janúar 2026 13:14 Hjónin Baltasar Samper og Kristjana á frumsýningu Gerplu í leikstjórn sonar þeirra, Baltasars Kormáks, árið 2010. Katalónsk-íslenski listmálarinn Baltasar Samper er látinn, 88 ára að aldri.
Ríkisútvarpið greinir frá andláti hans. Baltasar Samper fæddist í Barselóna í Katalóníu á Spáni 9. janúar 1938 og ólst þar upp, sonur hjónanna Ramiro Bascompte de La Canal og Maríu Samper de Córdada. Baltasar stundaði nám við Listaháskólann í Barselóna og útskrifaðist þaðan sem myndlistarmaður með kennararéttindi árið 1961. Hann ferðaðist um alla Evrópu það árið og kom þá til Íslands þar sem hann dvaldi í átta mánuði og var á síldarveiðum. Hann fór þá í eins árs reisu um Evrópu til að kynna sér listasöfn álfunnar en sneri svo aftur til Íslands, kynntist þá konu sinni, Kristjönu Guðnadóttir Samper og bjó á Íslandi samfleytt frá 1963. Baltasar var afkastamikill myndlistarmaður, hélt tugi einkasýninga og samsýninga hér á landi og kenndi við bæði Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Myndlistaskóla Reykjavíkur. Meðal þekktustu verka hans eru stórar freskumyndir sem hann málaði inni í Víðistaðakirkju og myndir á kirkjulofti Flateyjarkirkju sem sýna þætti úr atvinnulífi og sögu Flateyjarhrepps. Baltasar gerði jafnframt fjölda leikmynda fyrir Þjóðleikhúsið um árabil, myndskreytti fjölda námsbóka, skáldsagna og smásagna í Lesbók Morgunblaðsins og vann að tveimur bókum með rithöfundinum Jökli Jakobssyni, Síðasta skipi suður og Suðaustan fjórtán. Baltasar lætur eftir sig eftirlifandi eiginkonu, Kristjönu Guðnadóttur Samper, og þrjú börn þeirra, Mireyu Samper, Baltasar Kormák og Rebekku Rán Samper, sem öll fetuðu listabrautina.
Andlát Myndlist Spánn Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira