Nýr þjálfari Chelsea minnti leikmenn á að þvo sér um hendur Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. janúar 2026 10:30 Liam Rosenior vill ekki sjá fleiri leikmenn lenda í veikindum. Catherine Ivill - AMA/Getty Images Liðsfundur var haldinn í herbúðum Chelsea í gær þar sem þjálfarinn Liam Rosenior minnti leikmenn og starfsfólk félagsins á að sinna sóttvörnum, til að berjast gegn útbreiðslu vírussins sem er að hrella liðið.
Framherjinn Liam Delap og kantmaðurinn Jamie Gittens voru fjarverandi vegna veikinda í 3-2 tapi Chelsea gegn Arsenal í enska deildabikarnum í fyrrakvöld. Þeim félögum hefur verið sagt að halda sig heima og ekki mæta aftur á æfingar fyrr en þeir hafa náð fullum bata. Sumt starfsfólk félagsins hefur einnig smitast af veirusýkingunni sem svífur um Stamford Bridge og mætti ekki til vinnu í dag. Gittens og Delap gleymdu kannski að spritta sig. Richard Pelham/Getty Images Liam Rosenior, nýráðinn þjálfari Chelsea, sagði Delap og Gittens ekki geta tekið þátt í næsta leik liðsins gegn Brentford á laugardaginn. „Læknarnir okkar eru að gera allt sem þeir geta til að stöðva útbreiðslu þess sem lítur út fyrir að vera vírus, því eitthvað starfsfólk hefur smitast líka. Við héldum fund þar sem við minntum leikmenn á að þvo sér um hendur og sinna þessum helstu sóttvörnum. Það er mjög mikilvægt og vonandi náum við stjórn á þessu því það er þétt prógramm framundan hjá okkur. Við þurfum að hafa alla heila heilsu“ sagði þjálfarinn. Chelsea mætir síðan Pafos í Meistaradeildinni næsta þriðjudag en það er leikur sem liðið verður að vinna til að eiga möguleika á að enda í átta efstu sætunum og forðast umspil. Gleðifréttir bárust einnig úr herbúðum Chelsea í gær því Cole Palmer og Reece James sneru aftur til æfinga með liðinu eftir að hafa glímt við meiðsli. Þá er Romeo Lavia byrjaður að æfa aftur, en ekki með liðinu, eftir tveggja mánaða fjarveru vegna meiðsla.
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ „Ástæðan fyrir því að ég elska fótbolta“ Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Sjá meira