Ekki ný hugsun heldur ábyrgðarleysi Anna Björg Jónsdóttir og Berglind Magnúsdóttir skrifa 18. janúar 2026 21:30 Þeir sem vinna að stefnumótun og framkvæmd í málefnum eldra fólks (málaflokkur aldraðra) hafa ítrekað bent á nauðsyn nýsköpunar, samþættingu þjónustu og þróun nýrra úrræða fyrir ört stækkandi hóp aldraðra. En það sem nú er að gerast í stjórnsýslu málaflokksins á ekkert skylt við það. Þetta er þvert á móti skipulagslegt ábyrgðarleysi. Að færa hluta þessa málaflokks á milli ráðuneyta af handahófi, án heildarsýnar og án skýrrar röksemdafærslu, er ekki víðsýni. Það er stefnuleysi. Málaflokkur í stöðugri óvissu Frá því núverandi ríkisstjórn tók við völdum hefur málaflokkurinn verið í stöðugri óvissu. Í byrjun árs 2025 var ákveðið að færa hluta þjónustu við eldra fólk frá heilbrigðisráðuneytinu yfir í félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Hjúkrunarheimili, dvalarheimili og dagdvalir áttu skyndilega ekki lengur heima undir heilbrigðisráðherra, án þess að nokkur heildræn greining lægi að baki. Þetta eru ekki jaðarmál. Hjúkrunarheimili, dvalarheimili og dagdvalir eru skilgreind sem heilbrigðisþjónusta. Rekstur þeirra er fjármagnaður með daggjöldum frá Sjúkratryggingum Íslands. Klippt í sundur án rökstuðnings Þegar leið á árið 2025 varð ljóst að einungis húsnæði hjúkrunarheimila, ekki þjónustan sjálf, og almennar dagdvalir, ekki dagdvalir fyrir fólk með heilabilun, yrðu á ábyrgð félags- og húsnæðismálaráðherra. Málaflokkurinn var klipptur í sundur, án þess að fyrir lægi rökstuðningur. Málefni eldra fólks eru stór og flókinn málaflokkur. Þau snúast um milljarða í opinberum útgjöldum, um að rétt þjónusta sé veitt á réttum tíma af réttum aðilum. Þau snúast um mönnunarkreppu í heilbrigðiskerfinu, um forvarnir, um þörf á aukinni heimaþjónustu, um að seinka eða koma í veg fyrir dýrar og íþyngjandi stofnanavistir og í dag einnig um að hægt sé að útskrifa fólk af Landspítala. Þetta krefst heildarsýnar. Ekki bútasaums. Ábyrgð á flakki Síðustu tólf mánuði hefur málaflokkurinn hikstað. Það er ekki vegna þess að starfsfólk ráðuneyta viti ekki hvað þurfi að gera. Það er vegna þess að pólitísk forysta hefur skapað óljóst og óstöðugt stjórnkerfi þar sem ábyrgðin er sífellt á flakki milli ráðuneyta. Nú bætist svo við nýtt lag af óreiðu. Nýr mennta- og barnamálaráðherra, Inga Sæland, hyggst fara með stjórnarmálefni sem varða uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustuíbúða fyrir eldra fólk. Engin rök fylgja ákvörðuninni. Engin skýring. Engin sýn. Úr því sem komið var, hefði þá ekki verið eðlilegra að treysta nýjum félags- og húsnæðismálaráðherra til að halda áfram uppbyggingu húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili? Þveröfug leið Í dag er málaflokkur aldraðra dreifður á þrjú ráðuneyti: heilbrigðis-, félags- og húsnæðis- og mennta- og barnamálaráðuneyti. Á sama tíma vinna önnur lönd markvisst að því að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk. Hér er farið í þveröfuga átt. Eldra fólk verður ekki sérstakur „málaflokkur“ fyrr en þörf skapast fyrir mikla þjónustu, það er að segja þegar heilsubrestur knýr á og færni minnkar. Þá þarf þjónustan að virka hratt, samhæfð og af fagmennsku. Hún getur ekki verið háð því hvaða ráðherra vill „taka með sér“ ákveðinn hluta málaflokksins. Anna Björg Jónsdóttir rt öldrunarlæknir og Berglind Magnúsdóttir sálfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eldri borgarar Mest lesið Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun