Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sindri Sverrisson skrifar 19. janúar 2026 10:29 Þorleifur Úlfarsson staldraði nokkuð stutt við hjá Breiðabliki og er farinn aftur út. Breiðablik Sóknarmaðurinn Þorleifur Úlfarsson, sem var á mála hjá Breiðabliki á síðustu leiktíð, hefur ákveðið að halda aftur til Bandaríkjanna og spila þar með liði Loudoun United. Hann ætlar sömuleiðis að fá þar áfram útrás fyrir áhuga sinn á tískufötum.
Þorleifur, sem er 25 ára, sló fyrst í gegn í bandaríska háskólafótboltanum og var svo ráðinn í kjölfarið til MLS-félagsins Houston Dynamo. Þaðan fór hann til Debrecen í Ungverjalandi en svo fóru meiðsli að hafa áhrif á ferilinn. Hann brá á það ráð að koma aftur til uppeldisfélags síns Breiðabliks en náði aðeins að spila þrjá leiki í Bestu deildinni í fyrra, auk tveggja leikja í Sambandsdeild Evrópu, eftir að hafa komist aftur á ferðina eftir meiðslin. Nú hefur hann hins vegar skrifað undir samning til tveggja ára við Loudoun United, sem spilar í USL-deildinni, þeirri næststerkustu í Bandaríkjunum á eftir MLS. „Ég er spenntur fyrir þessum nýja kafla og þakklátur fyrir tækifærið. Hérna ætla ég að leggja hart að mér og vaxa með hverjum degi, og gera það sem ég get til að liðinu vegni vel. Ég lofa að leggja allt í sölurnar fyrir stuðningsmenn og alla hjá félaginu,“ sagði Þorleifur á heimasíðu síns nýja félags. View this post on Instagram A post shared by Loudoun United Football Club (@loudoununitedfc) Í kynningu á honum á Instagram-síðu félagsins var hann beðinn um dæmi um eitthvað sem hann gæti ekki lifað án og svaraði: „Eitthvað sem ég gæti ekki lifað án er alveg klárlega tíska. Að geta tjáð mig með því hvernig ég klæði mig er mér mjög mikilvægt. Og ég er viss um að þið fáið að sjá það í framtíðinni.“ Loudoun United er staðsett í Leesburg í Virginíufylki. Félagið var stofnað fyrir sjö árum, fyrst sem varalið D.C. United en eftir eigendaskipti var þeirri tengingu slitið árið 2023. Liðið hafnaði í 8. sæti af 12 liðum austurdeildar USL-deildarinnar á síðustu leiktíð en féll svo úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Ný leiktíð hefst í byrjun mars.
Bandaríski fótboltinn Breiðablik Besta deild karla Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Æfir blindandi og skýtur á eigandann Sport Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Enski boltinn Fleiri fréttir Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Sjá meira