Frakkar munu að svo stöddu ekki sniðganga HM vegna Grænlands Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. janúar 2026 17:46 Frakkar hafa verið í síðustu tveimur úrslitaleikjum á HM en hér kyssir kornungur Kylian Mbappe bikarinn eftir sigur Frakka á HM í Rússlandi 2018. EPA/FACUNDO ARRIZABALAGA Íþróttamálaráðherra Frakklands sagði að Frakkar væru ekki að íhuga að sniðganga heimsmeistaramótið í fótbolta í Bandaríkjunum vegna vaxandi spennu í tengslum við tilraunir Donalds Trump til að ná yfirráðum yfir Grænlandi. „
Á þessari stundu er enginn vilji af hálfu ráðuneytisins til að sniðganga þessa stóru keppni sem beðið er með mikilli eftirvæntingu,“ sagði Marina Ferrari íþróttamálaráðherra við fréttamenn á þriðjudag. „Að því sögðu er ég ekki að leggja mat á hvað gæti gerst.“ Ferrari bætti við að hún vildi halda íþróttum aðskildum frá stjórnmálum. „Heimsmeistaramótið 2026 er gríðarlega mikilvæg stund fyrir alla íþróttaunnendur,“ sagði hún. Þar sem mótið hefst í júní í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó gætu metnaðarfull áform Bandaríkjaforseta um að ná yfirráðum yfir Grænlandi frá Danmörku, bandalagsþjóð í NATO, skaðað samskiptin við bandamenn í Evrópu. Í Frakklandi sagði vinstrisinnaði þingmaðurinn Eric Coquerel að íhuga ætti möguleikann á sniðgöngu af hálfu Frakka, sem hafa tvívegis unnið HM karla. „Í alvöru, getum við ímyndað okkur að fara að spila fótbolta á HM í landi sem ræðst á „nágranna“ sína, hótar að ráðast inn í Grænland, grefur undan alþjóðalögum og vill eyðileggja Sameinuðu þjóðirnar?“ spurði hann í skilaboðum sem birt voru á samfélagsmiðlum. „Spurningin vaknar fyrir alvöru, sérstaklega þar sem enn er hægt að færa mótið alfarið til Mexíkó og Kanada,“ skrifaði hann. Frakkland tapaði fyrir Argentínu í úrslitaleik HM árið 2022.
HM 2026 í fótbolta Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Uppgjörið KR - Njarðvík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarðvík í Vesturbænum Körfubolti Fleiri fréttir Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira