Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. janúar 2026 15:30 Hljómsveitirnar Hatari og Vintage Caravan hættu báðar óvænt við tónleikaferðalög sín. Iðnaðarteknósveitin Hatari hefur hætt við tónleikaferðalag sitt um Evrópu í febrúar án nokkurrar skýringar. Í síðustu viku hætti rokkhljómsveitin The Vintage Caravan við tónleikaferðalag sitt vegna andlegrar þreytu.
Hatari greindi frá fregnunum á samfélagsmiðlum sínum. Tónleikaferðalagið átti að hefjast 14. febrúar í Brussel í Belgíu áður en þeir færu til Amsterdam í Hollandi, Berlínar í Þýskalandi, Prag í Tékklandi og Varsjár og Poznan. „NO MORE TOUR“ eða „Ekkert tónleikaferðalag“ er yfirskrift færslnanna sem hljómsveitin hefur deilt á Facebook og Instagram. „Febrúar-tónleikaferðalagið hefur verið fellt niður. Ekki frestað. Ekki endurskipulagt. Sannarlega fellt niður. Miðar verða endurgreiddir,“ segir í færslunni. Þá þakkar sveitin öllum þeim sem „ætluðu að mæta, íhuguðu að mæta eða vildu mæta“ og segist meta allar skuldbindingar jafnt. Loks segir að lögin og platan verði áfram til. Meðal þeirra sem sitja eftir með sárt ennið eru sigurvegarar í gjafaleik íslenska sendiráðsins í Brussel sem fór fram í desember síðastliðnum. Fimm pör unnu þar miða en munu ekki geta nýtt sér þá. Hættu við Ameríkutúr vegna andlegrar þreytu Hatari er ekki eina hljómsveitin sem hefur hætt við tónleikaferðalag sitt upp á síðkastið. Íslenska rokkhljómsveitin Vintage Caravan tilkynnti fimmtudaginn 15. janúar að hún væri hætt við tónleikaferðalag sitt um Suður-Ameríku vegna andlegrar þreytu. Ferðalagið átti að hefjast 22. janúar í Rio de Janeiro í Brasilíu og enda í Mexíkó 8. febrúar með viðkomu í Argentínu og Kosta Ríka. Óskar Logi Ágústsson, stofnaði Vintage Caravan árið 2006 þegar hann var tólf ára gamall.Vísir/Vilhelm „Við höfum keyrt okkur áfram síðastliðin tólf ár og aldrei fyrr fellt niður tónleikaferðalag en nú höfum við lent á vegg og því miður er okkur engra kosta völ,“ sagði í tilkynningu hljómsveitarinnar um ákvörðunina. Löng ferðalög og lítill svefn myndi hafa slæm áhrif á heilsu hljómsveitarmeðlima og því hefðu þeir tekið ákvörðunina. „Við elskum vini okkar í Rómönsku-Ameríka og okkur þykir leitt að valda ykkur vonbrigðum,“ sagði einnig. Þökkuðu þeir skipuleggjendum tónleikaferðalagsins og bentu aðdáendum á að hægt væri að fá endurgreitt á tónleikastöðum.
Tónlist Belgía Pólland Þýskaland Holland Brasilía Argentína Kosta Ríka Mexíkó Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Fundu ástina á Domino's Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira