Mikael Egill fagnaði endurkomusigri Ágúst Orri Arnarson skrifar 25. janúar 2026 16:10 Mikael Egill í leik með Genoa Vísir/Getty Mikael Egill Ellertsson spilaði allan leikinn í 3-2 endurkomusigri Genoa gegn Bologna í 22. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar. Genoa lenti tveimur mörkum undir en sneri leiknum við eftir að gestirnir urðu manni færri.
Mikael Egill var á miðjunni hjá Genoa en þessi fjölhæfi leikmaður hefur líka spilað hægri og vinstri vængbakvarðarstöðuna undir stjórn Daniele De Rossi. Genoa hefur nú farið fimm leiki í röð án taps og fagnað tveimur sigrum, sem hafa lyft liðinu upp úr fallbaráttunni og í 13. sæti deildarinnar. Það stefndi hins vegar allt í tap, því Genoa lenti tveimur mörkum undir. Lewis Ferguson kom boltanum í netið rétt fyrir hálfleik og Sebastian Otoa skoraði sjálfsmark sem tvöfaldaði forystuna. Bologna missti mann af velli skömmu síðar, Lukasz Skorupski fékk rautt spjald fyrir að fella sóknarmann sem var sloppinn í gegn. Þá tókst heimamönnum Genoa að snúa leiknum algjörlega við. Ruslan Malinovskiy minnkaði muninn og Caleb Ekuban jafnaði leikinn. Junior Messias innsiglaði svo sigurinn með glæsimarki, skoti af löngu færi. Endurkoma hjá Karólínu og Cecilíu líka Cecilía Rán Rúnarsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fögnuðu líka 3-2 endurkomusigri, með Inter á útivelli gegn FC Como. Inter lenti tvisvar undir en kom til baka í bæði skipti og skoraði síðan sigurmarkið á fjórðu mínútu uppbótartíma. Cecilía Rán var í byrjunarliðinu og spilaði allan leikinn en Karólína kom inn af varamannabekknum á 59. mínútu, rétt áður en Inter jafnaði 2-2. Tap hjá Birtu Birta Georgsdóttir spilaði síðasta hálftímann í 0-1 tapi Genoa gegn Roma í 11. umferð ítölsku úrvalsdeildar kvenna. Birta var þar að spila sinn annan leik fyrir félagið en hún skoraði jöfnunarmark gegn Fiorentina í fyrsta leiknum í síðustu umferð.
Ítalski boltinn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Sjá meira