Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. janúar 2026 10:28 Verðlagseftirlit ASÍ hefur skoðað verð í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs. Vísir/Ívar Fannar Miklar hækkanir urðu á gosdrykkjum og brauðmeti um áramótin, að því er verðlagseftirlit ASÍ leiðir í ljós. Samkvæmt því hækkaði Bónus og Krónan verð talsvert meira en Prís en þó Prís sé langódýrasta matvöruverslunin þá hækkaði verðlag þar meira árið 2025 en í Bónus og Krónunni. Segir að hækkanirnar komi fyrr fram en í janúar í fyrra.
Borin voru saman verð þann 17. janúar síðastliðinn í Prís, Bónus og Krónunni og mátuð við verð á sömu vörum þann 10. desember síðastliðinn. Verð á vörum frá Ölgerðinni hafði hækkað um 3-4 prósent að meðaltali í Bónus, Krónunni og Prís. Verð á vörum frá Coca-Cola á Íslandi hafði ekki hækkað í Prís en hækkaði um rúmlega 4 prósent í Krónunni og rúmlega 5 prósent í Bónus. Vörur frá Myllunni hækkuðu í verði um hálft annað prósent í Bónus að meðaltali, um 3 prósent í Krónunni en ekki í Prís. Eru þetta veigamestu hækkanirnar frá byrjun ársins. Vörur frá Kaffitár hækkuðu um rúmlega 5 prósent í Bónus. Tekið er fram að sumar birgjahækkanir komi inn á ólíkum tímapunktum eftir verslunum. Til dæmis höfðu vörur Kaffitár hækkað í verði þann 20. janúar í Krónunni um svipaða upphæð, en það var þremur dögum eftir verðkönnunina. Poki af Morgundögg möluðu kaffi kostar nú 1.349kr í Bónus og 1.350kr í Krónunni, en kostaði í ársbyrjun 1.279kr í Bónus og 1.280kr í Krónunni. Bónus og Krónan byrji árshækkunina snemma Hækkun á matvöruvísitölu Bónus og Krónunnar milli 10. desember og 17. janúar nemur 0,47 prósentum, sem gera 4,6 prósent á ársgrundvelli – hærra en árshækkunin í verslununum tveimur, sem nam 3,7 prósent í Krónunni og 4,2 prósent í Bónus. (Hækkun á ársgrundvelli segir hversu mikil hækkunin væri ef hún ætti sér stað alla mánuði ársins.) Í Prís breyttust verð lítið – á ársgrundvelli hækkaði verðlag þar um 0,8 prósent. Undanfarið ár hefur verðlag þar hins vegar hækkað meira, eða um 5,7 prósent. Prís langódýrast en Bónus og Krónan á krónumun Þá kemur fram í verðlagseftirliti ASÍ að iðulega sé krónumunur á verði Bónus og Krónunnar, nú sem fyrr. Í 953 verðsamanburðum af 1.091 var Krónan einni krónu dýrari en Bónus, eða í 87 prósent tilfella. Bónus var að meðaltali 4,7 prósent dýrara en Prís þegar 474 vörur eru skoðaðar sem finna mátti í báðum verslunum. Krónan var 6,0 prósent dýrari en Prís í samanburði á 601 vöru og 0,6 prósent dýrari en Bónus í samanburði á 1.091 vöru.
Neytendur Verðlag Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira