Daði Már og mannauðsmálin Kári Sigurðsson skrifar 2. febrúar 2026 08:02 Það hefur sjaldan verið jafn mikilvægt og nú að ræða mannauðsmál ríkisins af yfirvegun og ábyrgð. Þrátt fyrir það er fjármálaráðherrann, Daði Már Kristófersson, á vegferð sem virðist fremur byggja á óljósri hugmyndafræði út frá samtölum við einsleitan hóp og persónulegri reynslu af stjórnun, frekar en samráði og raunverulegum gögnum. Það er mikil einföldun að halda að töfralausnin á mannauðsvanda ríkisins sé að veikja réttindi opinberra starfsmanna með frumvarpi um að afnema áminningarskylduna. Þessi þankagangur er mikið áhyggjuefni. Það er auðvelt að tala um sveigjanleika og „markaðslausnir“ en mun erfiðara að takast á við raunveruleg mannauðsmál sem krefjast vandaðrar stjórnsýslu. Þetta felur í sér að tryggja góð samskipti, forvarnir, stuðning og faglega uppbyggingu heilt yfir alla stjórnsýsluna. Slíkar fjárfestingar kosta tíma og fjármuni en skila sér margfalt í minni starfsmannaveltu og betri þjónustu. Oft gleymist í umræðunni hversu reglulegar skipulagsbreytingar eru hjá hinu opinbera. Já, skipulagsbreytingar geta verið nauðsynlegar en hversu oft á að stokka upp leikreglurnar í sumum stofnunum? Stöðug óvissa um næstu endurskipulagningu skapar mikið álag á starfsfólk, sem bætist ofan á álag vegna manneklu á sumum vinnustöðum ríkisins. Þetta álag og óvissa getur grafið undan öryggi og starfsanda vinnustaðarins. Sameyki er í sérstakri stöðu, við eigum bæði stóra hópa sem falla undir áminningarskyldu í gegnum lög eða kjarasamninga og hópa sem gera það ekki. Við sjáum skýran mun á vinnustöðum þar sem réttindi og ferlar eru tryggðir og vinnustöðum þar sem áminningarskyldan á ekki við. Það er ekki tilviljun að við heyrum ítrekað frá félagsfólki sem hefur misst vinnuna án nokkurs fyrirvara, án samtals og stundum án fullnægjandi skýringa. Slíkt gerist stundum eftir að starfsmenn hafa bent á óeðlilega stjórnun, brot á kjarasamningum eða slæma meðferð fjármuna. Þessi framkoma er ekki ásættanleg í opinberri stjórnsýslu sem á að byggja á jafnræði, fagmennsku og vandaðri málsmeðferð, í samræmi við m.a. meginreglur stjórnsýsluréttar. Það þarf vart að taka fram að margir stjórnendur eru til fyrirmyndar, vinna af heilindum og þekkja lögbundin réttindi opinberra starfsmanna, en það er ekki þeirra vegna sem verið er að breyta lögunum. Vandamálið er hinn hópurinn, þeir sem misnota vald sitt, þekkja ekki lögin og fara því ekki eftir þeim. Þessum stjórnendum á ekki að veita enn meira svigrúm, þar sem slík völd geta grafið undan réttaröryggi starfsmanna og farið gegn grundvallarreglum stjórnsýsluréttar. Stjórnendur þurfa ekki meiri völd – heldur skýr verkfæri, aðhald og raunverulegan stuðning í mannauðsmálum. Allir þurfa að vinna eftir sömu leikreglum og þarna getur ríkið gert betur. Mikilvægt er að tryggja samræmi og jafnræði í framkvæmd, t.d. með markvissri fræðslu til stjórnenda um reglur starfsmannalaga og stjórnsýsluréttar. Ríkisstjórn sem vill bæta opinbera þjónustu á ekki að byrja á að rýra réttindi starfsfólks. Hún á að byrja á sjálfri sér, til dæmis með því að tryggja að einföld grunnatriði eins og regluleg starfsmannasamtöl séu skylda hjá öllum stofnunum. Við vitum mikilvægi þeirra – ekki af því að okkur finnst það, heldur vegna gagna. Í mannauðskönnuninni Stofnun ársins, einni stærstu og áreiðanlegustu mannauðskönnun landsins, kemur ár eftir ár skýrt fram að slík samtöl eru einn mikilvægasti grunnþáttur heilbrigðrar vinnustaðamenningar. Því miður getur sú staða komið upp í haust að kjarasamningar verði í uppnámi. Hvernig hyggst ríkisstjórnin ætla að bregðast við því? Það er varlega orðað að segja að þetta útspil muni flækja það samtal verulega. Þess vegna segjum við skýrt: Við munum ekki sitja hjá á meðan réttindum opinberra starfsmanna er fórnað fyrir pólitíska hugmyndafræði studda af hagsmunasamtökum sem hafa undanfarið verið að grafa undan opinberu starfsfólki með dylgjum, ómálefnalegum áróðri og beinni aðför að réttindum þess sem bundin eru í lög. Ef ráðherra heldur áfram á þessari braut verður því mætt af festu. Höfundur er formaður Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Kári Sigurðsson Mest lesið Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Skoðun Treysta Alþingismenn ekki Alþingi? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar Skoðun Þegar vinstrið slær á framtakið Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kynami. Þegar vanlíðan barns er gefið rangt nafn Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar
Skoðun Ertu að segja sögu? Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar
Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir Skoðun