Skoðun

Þegar vinstrið slær á fram­takið

Ragnar Sigurðsson skrifar

Pólitíski munurinn á hægri og vinstri birtist skýrt í umræðunni um Drekasvæðið. Fjárfestar vilja leggja eigið fé í rannsóknir og taka fjárhagslega áhættu. Við sem trúum á einkaframtakið viljum greiða fyrir því. Andstaðan á þingi virðist hins vegar snúast um að stjórnmálamenn eigi að meta fyrir fjárfestana hvort tækifærið sé þess virði að kanna.

Það er einmitt þetta sem bæjarráð Fjarðabyggðar hefur kallað eftir í bókunum sínum: frekari rannsóknum og því að einkaaðilum verði gefið færi á að fjármagna þær og bera fjárhagslegu áhættuna. Krafan hefur aldrei verið um að stjórnvöld ábyrgist olíufund. Hún snýst um að afla þekkingarinnar sem vantar.

Greinargerð Umhverfis- og orkustofnunar byggir meðal annars á gögnum fyrri leyfishafa. Þar kemur fram að rannsóknarborun sé eina leiðin til að draga úr óvissunni í túlkun rannsakenda. Þannig mætti kanna betur eldri jarðlög og möguleika á myndun og varðveislu kolvetna. Þetta er rannsóknarþörfin sem bæjarráð hefur bent á.

Mér finnst stjórnarþingmenn samt grípa fegins hendi það sem styður áframhaldandi aðgerðaleysi. Eydís Ásbjörnsdóttir tók þó fram í ræðu sinni á Alþingi að niðurstaða greinargerðarinnar útilokaði ekki frekari rannsóknir. Það er jákvætt, en þeirri viðurkenningu verða að fylgja aðgerðir. Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur einmitt kallað eftir frekari rannsóknum og því að einkaaðilum verði gefið færi á að fjármagna þær og bera fjárhagslegu áhættuna. Ef frekari rannsóknir koma til greina og fjárfestar vilja ráðast í þær er ekkert annað að gera en hefjast handa.

Rannsóknirnar sjálfar gætu skapað störf og orðið innspýting í öflugt atvinnulíf Austurlands. Þær krefjast sérfræðiþekkingar, flókins búnaðar og umfangsmikillar tækni. Þeim gætu fylgt verkefni fyrir hafnir, skipaþjónustu, verkstæði, flutningafyrirtæki og tæknilega ráðgjafa. Þekkingin sem verður til hefur jafnframt gildi óháð hugsanlegum olíufundi.

Ríkisstjórnin segist vilja rjúfa kyrrstöðu og auka verðmætasköpun. Þá þarf hún að vinna með þeim sem vilja fjárfesta. Hlutverk stjórnvalda er að setja skýrar reglur, tryggja eftirlit og gera kröfur um umhverfi, öryggi og getu fjárfestanna.

Fögnum því að einkaaðilar hafi trú á svæðinu og vilja leggja fé í rannsóknir. Verðmætasköpun krefst frumkvæðis og áhættutöku. Einkaframtakið vill taka fjárhagslegu áhættuna. Stjórnvöld eiga að greiða fyrir því að rannsóknir geti hafist.

Höfundur er formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar.




Skoðun

Skoðun

Ertu að segja sögu?

Helga Edwardsdóttir,Hanna Birna Valdimarsdóttir,Sigríður Elín Ásgeirsdóttir,Steinunn Júlía Rögnvaldsdóttir Robinson skrifar

Sjá meira


×