„Ég er ekki Gandálfur hinn grái“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. febrúar 2026 09:30 Gandálfur hinn grái úr Lord of the Rings og Álvaro Arbeloa þjálfari Real Madrid sem segist ekki vera galdramaður. Getty/ J. Countess/M Gracia Jimenez Álvaro Arbeloa tókst að stýra Real Madrid til sigurs í spænsku deildinni um helgina en missti við það einn mikilvægasta leikmann sinn í meiðsli.
Arbeloa viðurkenndi að Jude Bellingham væri „mikill missir“ eftir að miðjumaðurinn var tekinn af velli eftir aðeins tíu mínútna leik í 2-1 sigri Real Madrid á Rayo Vallecano. Bellingham meiddist aftan í vinstra læri og það sáust tár falla hjá honum í svekkelsinu. Enski landsliðsmaðurinn fór niður og hélt um lærið á sér eftir að hafa elt boltann niður hægri kantinn þegar staðan var enn markalaus. Eftir að liðsfélagar höfðu huggað hann haltraði hann af velli, sýnilega í uppnámi og þerraði tárin, á meðan varamaðurinn Brahim Díaz kom inn á í hans stað. Víti á 100. mínútu Kylian Mbappé skoraði úr vítaspyrnu á 100. mínútu og tryggði Madrid dýrmæt þrjú stig eftir erfiðan leik þar sem Jorge de Frutos jafnaði fyrir Rayo eftir snemmbúið mark Vinícius Júnior, áður en tveir leikmenn gestanna fengu rautt spjald. La enigmática respuesta De Arbeloa cuando le preguntan por la evolución del equipo: “No soy GANDALF el Blanco. Para ganar al Rayo tenemos que hacer más que el resto de equipos” pic.twitter.com/ThPmrLsCMH— Diario AS (@diarioas) February 1, 2026 „Við vitum ekki enn með Jude. Bellingham hefur lagt sig gríðarlega fram í hverjum leik síðan ég kom hingað. Þetta er mjög mikill missir, en við erum með ótrúlegan hóp,“ sagði Álvaro Arbeloa á blaðamannafundi eftir leik þegar hann var spurður um meiðsli Bellingham. Púað á leikmenn Real Madrid Bellingham var einn þeirra leikmanna – ásamt Vinícius – sem sumir stuðningsmenn púuðu á fyrir leik þegar nöfn þeirra voru tilkynnt í hátalarakerfi vallarins. Bellingham hefur verið mikið meiddur á tímabilinu og missti af byrjun þess eftir að hafa gengist undir axlaraðgerð síðasta sumar. „Ég ber virðingu fyrir áhorfendum á Bernabéu og mun alltaf biðja um stuðning þeirra,“ sagði Arbeloa þegar hann var spurður um púið. Arbeloa fullyrti að Madrid hefði ekki verið heppið að fá níu mínútur í uppbótartíma í lok seinni hálfleiks, þar sem sigurvítaspyrnan var dæmd á 98. mínútu og Mbappé skoraði tveimur mínútum síðar. Það hefði getað verið meira „Það hefði getað verið meira. Í hvert skipti sem gestaliðin taka markspyrnu hérna tekur það mínútu,“ sagði Arbeloa. Þjálfarinn viðurkenndi að lið hans þyrfti að vera stöðugra eftir erfiða byrjun á tíma hans við stjórnvölinn. „Ég er ekki Gandálfur hinn grái,“ sagði Arbeloa og vísaði til galdramannsins úr skáldsögunum J.R.R. Tolkien. „Það sem ég er að fá er það sem ég vildi frá leikmönnum mínum: skuldbindingu og áreynslu,“ sagði Arbeloa.
Spænski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Fleiri fréttir Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti Veik byrjun Vålerenga Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Sjá meira