Samtal við ókunnugan getur aukið hamingju, orku og tengsl Ingrid Kuhlman skrifar 3. febrúar 2026 08:03 Hefur þú einhvern tíma setið í almannarými, með heyrnartól í eyrunum og augun límd við símann, í þeirri von að enginn tali við þig? Þú ert líklega ekki ein/n um það. Í nútímasamfélagi, þar sem samskiptin fara sífellt oftar fram í gegnum skjái og bein tengsl við fólk í raunheimum eru sjaldgæfari, hefur orðið eðlilegt að halda sig til hlés. Við tölum minna við ókunnuga, horfum sjaldnar í augun á fólki og viljum hvorki trufla né vera trufluð. Margir telja að spjall við ókunnugan verði vandræðalegt eða þreytandi, sérstaklega þegar við erum lúin eða einfaldlega ekki í stuði. En rannsóknir sýna að við höfum rangt fyrir okkur. Rannsóknin sem sneri væntingum á hvolf Ein athyglisverðasta rannsóknin á þessu sviði var framkvæmd af sálfræðingunum Nicholas Epley og Juliönu Schroeder við háskólann í Chicago árið 2014. Þar voru bæði innhverfir (introverts) og úthverfir (extroverts) beðnir um að hefja samtal við ókunnugan á leið sinni til vinnu eða skóla. Fyrirfram töldu nær allir að samtalið yrði óþægilegt og að einveran væri ánægjulegri. En þegar á reyndi sögðust þátttakendur, óháð persónuleikagerð, upplifa meiri ánægju, sterkari tengsl og meiri orku en þeir sem héldu sig út af fyrir sig. Að tala við ókunnugan reyndist ekki aðeins jákvætt fyrir þann sem tók frumkvæðið heldur einnig fyrir viðmælandann. Þessi niðurstaða sýnir hversu illa við metum eigin félagsþörf. Við teljum að við viljum vera í friði, en í raun getur jafnvel stutt og óformlegt samtal haft áhrif á það hvernig við upplifum daginn og okkur sjálf í samhengi við aðra. Ég hef sjálf oft talið mig vilja vera í friði, en ítrekað upplifað að stutt samtal við ókunnugan skilur mig eftir léttari en áður. Við lærum ekki endilega af eigin reynslu Tilraunir Epley og Schroeder leiddu einnig í ljós að þessi misskilningur stafar ekki af skorti á ímyndunarafli heldur af því að við lærum ekki af eigin reynslu. Þeir sem voru vanir að eiga örstutt samtöl við ókunnuga, til dæmis við leigubílstjóra, höfðu raunsærri væntingar og upplifðu samskiptin skemmtilegri. Þeir sem héldu sig jafnan til hlés vanmátu hins vegar áhrifin á eigin líðan og töldu þögnina ánægjulegri. Þegar þeir loks prófuðu að tala við ókunnugan upplifðu þeir oft hið gagnstæða: léttleika, ánægju og tilfinningu fyrir tengslum. Í ljós kom einnig að það að einhver tali við okkur að fyrra bragði hefur sambærileg áhrif og þegar við tökum sjálf frumkvæðið. Félagsleg samskipti geta gefið orku Í annarri tilraun, þar sem var líkt eftir biðstofu, kom í ljós að ánægjan smitast. Þeir sem töluðu við ókunnugan nutu biðtímans betur og fólkið sem var talað við upplifði hann ekki síður jákvætt. Stundum dugar einfalt bros eða hlýtt „hæ“ til að breyta stemmingunni hjá báðum aðilum. Flest okkar telja að félagsleg samskipti kosti orku þegar þau geta í raun gefið orku. Það þarf hvorki langt né djúpt samtal til að hafa áhrif. Stutt spjall í búð, vingjarnleg orð í biðröð eða augnablik í lyftu geta nægt til að breyta deginum. Hamingja, tengsl og jákvæð sálfræði Í jákvæðri sálfræði eru félagsleg tengsl talin einn af grunnþáttum hamingju og vellíðanar. Fólk sem á regluleg, jafnvel mjög stutt, jákvæð samskipti við aðra, hvort sem það eru nágrannar, samstarfsfólk eða ókunnugir, upplifir meiri lífsánægju. Þegar við opnum á samskipti virkjum við þau kerfi heilans sem tengjast umbun, trausti og öryggi. Líkaminn losar taugaboðefni á borð við oxýtósín og dópamín, sem styrkja tilfinningu fyrir vellíðan og tengslum. Þannig getur smáspjall við ókunnugan verið einföld leið til að minna bæði líkama og huga á að við erum hluti af stærra samhengi. Við erum í eðli okkar félagsverur. Þrátt fyrir að samfélagið ýti sífellt meira undir hraða, einstaklingshyggju og afköst, býr í okkur djúp þörf fyrir að sjá og vera séð. Við þráum að tilheyra. Stundum þarf ekki meira en einfalt „Hæ, hvernig gengur?“ Prófaðu í dag Ráðið er því einfalt: Talaðu við ókunnuga og treystu því að gleðin sem fylgir tengslunum vegi þyngra en upphaflegu óþægindin. Hér eru nokkrar einfaldar leiðir til að prófa þetta: Spjallaðu við afgreiðslumanninn þegar þú greiðir fyrir vöruna Spurðu strætóbílstjórann eða kaffiþjóninn hvernig þeir hafi það Segðu vingjarnleg orð í ræktinni eða lyftunni Líttu upp úr símanum, brostu og bjóddu „góðan dag“ Þessi örstund af góðvild minnir okkur á að það er oft í einföldum samskiptum sem tengsl, hlýja og mannúð birtast. Höfundur er leiðbeinandi hjá Þekkingarmiðlun og með meistaragráðu í hagnýtri jákvæðri sálfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar Skoðun Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Garðabær má ekki staðna Viðar Kristinsson skrifar Skoðun Takk Reykvíkingar – stolt af því sem við áorkuðum saman Ellen Calmon skrifar Skoðun Fólkið í Hveragerði skiptir öllu máli Þorsteinn Hjartarson skrifar Sjá meira
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar