Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Kjartan Kjartansson skrifar 3. febrúar 2026 09:12 Guðmundur Karl Snæbjörnsson. fyrrverandi læknir. Upphaflega hélt hann því fram að landlæknir hefði svipt hann starfsleyfi vegna þess að hann væri honum óþægur ljár í þúfu. Það dróg hann síðar til baka. Heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun landlæknis um að svipta Guðmund Karl Snæbjörnsson starfsleyfi sem læknir. Hann hafi framið skýlaus lögbrot með því að halda áfram að auglýsa sig sem lækni eftir að hann var sviptur leyfinu í fyrra.
Landlæknir svipti Guðmund Karl lækningaleyfi sínu í fyrra vegna ólögmæts reksturs fjarheilbrigðisþjónustu frá árinu 2023. Taldi embættið að hann hefði brotið alvarlega gegn starfsskyldum sínum og ekki hirt um að bregðast við tilmælum þess. Guðmundur Karl mótmælti sviptingunni á aragrúa forsendna, meðal annars að lagaákvæði sem veitir heimild fyrir því að heilbrigðisstarfsfólk sé svipt starfsleyfi væri of „opið og óljóst“, landlækni hefði skort lagaheimild til að taka ákvörðunina og að hann hefði aldrei hafið starfsemi fjarlæknisþjónustunnar. Heilbrigðisráðuneytið hafnaði öllum málsástæðum Guðmundar Karls og staðfesti ákvörðun landlæknis. Benti það á að hann héldi enn áfram að auglýsa þjónustu sína sem hefði þannig augljóslega hafið starfsemi, þvert á skýringar Guðmundar Karls. Þá benti ráðuneytið á að Guðmundur Karl titlaði sig enn sem læknir, jafnvel eftir að hann var sviptur starfsleyfinu í fyrra. Það væri skýlaust brot á lögum og sýndi að ekki hefði verið tilgangur með því að áminna Guðmund Karl áður en hann var sviptur leyfinu. Alma Möller (t.v.) var vanhæf til að fjalla um kæru Guðmundar Karls og því var Jóhann Páll Jóhannsson (t.h.) settur heilbrigðisráðherra í málinu.Vísir/Anton Brink Alma Möller, heilbrigðisráðherra, var landlæknir þegar embættið fetti fingur út í starfsemi Guðmundar Karls. Hún lýsti sig því vanhæfa til þess að fjalla um kæru hans. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, var settur heilbrigðisráðherra í kærumálinu. Starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins unnu úr kærunni í umboði hans. Ekki hægt að sjá annað en hann ræki heilbrigðisþjónustu Guðmundur Karl tilkynnti embætti landlæknis um rekstur fjarheilbrigðisþjónustunnar í mars árið 2023. Embættið taldi tilkynninguna ófullnægjandi og óskaði eftir því að hann sendi inn nýja tilkynningu, ella yrði þeirri fyrri vísað frá. Engin viðbrögð bárust þó frá Guðmundi Karli. Síðar hélt Guðmundur Karl því fram að hann hefði aldrei hafið neina starfsemi þrátt fyrir að hann hefði vissulega sett upp heimasíðu þar sem kom fram að hann byði upp á læknisþjónustu. Hann hlyti ennfremur að mega eiga símtöl eða önnur samtöl við einstakinga sem til hans leituðu án þes að þá teldist hann reka heilbrigðisþjónustu. Ráðuneytið gaf lítið fyrir þau rök Guðmundar Karls. Á vefsíðu hans væru enn upplýsingar um læknisþjónustu sem hann byði gegn gjaldi. Þar segði ennfremur að síðan væri enn í smíðum en að bætt yrði við hana síðar, meðal annars með myndbandstengli og stofukomum eftir þörfum. „Ráðuneytið fær ekki séð hvernig framangreind þjónusta getur talist nokkuð annað en rekstur heilbrigðisþjónustu í skilningi laga [...],“ segir í niðurstöðu ráðuneytisins. Fram kemur í niðurstöðunni að Guðmundur Karl hafi skrifað á vefsíðuna að Sjúkratryggingar Íslands neituðu að niðurgreiða þjónustuna og að það væri „pólitísk ákvörðun“. Því stillti hann verði viðtala í hóf. Vildi vísa á sníkjudýralyf gegn Covid-19 Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Guðmundur Karl komst upp á kant við heilbrigðisyfirvöld. Í kórónuveirufaraldrinum sóttist hann eftir því að fá að skrifa upp á sníkjudýralyf með enga þekkta virkni gegn veirunni en var synjað um leyfi til þess. Það kom þó ekki í veg fyrir að Guðmundur Karl auglýsti ávisanir upp á lyfið á samfélagsmiðli. Lyfjastofnun krafðist þess að hann fjarlægði auglýsingarnar og taldi hann hafa framið eitt af alvarlegustu brotum sem til væru gegn lyfjalögum og reglum um lyfjaauglýsingar. Hann neitaði að verða við kröfu stofnunarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Heilbrigðismál Stjórnsýsla Tengdar fréttir Landlæknir sviptir Kalla Snæ lækningaleyfi Guðmundur Karl Snæbjörnsson hefur verið sviptur lækningaleyfi. Hann hefur krafist þess að endurmat fari fram á þeim gjörningi meðal annars á þeim forsendum að um hafi verið að ræða óeðlilega meðhöndlun. 12. júní 2025 16:19 Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira
Landlæknir sviptir Kalla Snæ lækningaleyfi Guðmundur Karl Snæbjörnsson hefur verið sviptur lækningaleyfi. Hann hefur krafist þess að endurmat fari fram á þeim gjörningi meðal annars á þeim forsendum að um hafi verið að ræða óeðlilega meðhöndlun. 12. júní 2025 16:19