KR - Tindastóll 85-87 | KR-ingar í úrslit eftir háspennu Kári Mímisson skrifar 3. febrúar 2026 19:17 Stólarnir eru úr leik en KR-ingar mæta Stjörnunni í úrslitum. Tindastóll og KR mættust í undanúrslitum VÍS-bikars karla nú í kvöld. Fyrir leikinn var ljóst að sigurvegarinn mynda mæta liði Stjörnunnar sem lagði Keflavík fyrr í kvöld. Eftir afar spennandi seinni undanúrslit er það ljóst að KR verður hitt liðið eftir dramatískan sigur á Tindastól. Lokatölur 87-85 fyrir KR. Leikurinn fór vel af stað hér í Smáranum en jafnræði var á milli liðanna í upphafi leiks þar sem bæði lið sýndu strax í upphafi sínar allra fínustu hliðar. Þegar líða tók á fyrri hálfleikinn voru það KR-ingar sem leiddu en þó aldrei með meira en níu stigum. Það var ákveðið Eystrasaltsþema í gangi hjá báðum liðum en hjá KR vor það Lettarnir Linards Jaunzems og Toms Leimanis sem fóru mikinn í fyrri hálfleik á meðan Litháinn, Adomas Drungilas var besti maður Stólanna. Þegar skammt var til hálfleiks átti Tindastóll möguleika á því að ná forystunni í fyrsta sinn í leiknum þegar Dedrick Basile fór í þriggja stiga skot með 1,5 sekúndu eftir á klukkunni. Skotið gekk ekki og Taiwo Badmus braut í kjölfarið afar klaufalega á Linards Jaunzems. Því miður fyrir Badmus var KR komið í bónus og í stað þess leiða í hálfleik þá fór Linards á línuna og tryggði KR fjögurra stiga forystu í hálfleik. Staðan 46-50 þegar liðin héldu til búningsherbergja. KR leiddi áfram í upphafi seinni hálfleiks og náði fínum kafla eftir að Drungilas þurfti að fá sér sæti á bekknum eftir að hafa lent í árekstri við Leimanis. Það varði þó ekki lengi því um leið og Drungilas var mættur aftur á völlinn tókst Stólunum að jafna á örskotsstundu. Munurinn var aðeins eitt stig þegar fjórði leikhlutinn hófst. Þegar innan við fjórar mínútur voru eftir af leiknum tókst Taiwo Badmus að koma Tindastól í 81-79 en það var í fyrsta sinn í leiknum sem liðið komst yfir. KR-ingar svöruðu strax og var spennan ógurleg undir lokin. Bæði lið fengu tækifæri til að komast yfir á lokamínútunum en þreytan var eitthvað farin að segja til sín. Þegar um ein og hálf mínúta var eftir af leiknum kom Þórir KR tveimur stigum yfir af vítalínunni. Bæði lið fengu sókn eftir það en tókst ekki að koma boltanum í körfuna. Drungilas fór í þriggja stiga skot þegar 16 sekúndur voru eftir sem gekk ekki en Stólarnir náðu frákastinu og Dedrick Basile tókst að skora og jafna með 10 sekúndur eftir. KR tók leikhlé og náði að stilla upp í lokasókn sem endaði með því að Þórir komast að körfunni og kom KR tveimur stigum yfir með 3.6 sekúndur eftir. Tindastóll tók leikhlé og kom boltanum á Davis Geks sem því miður fyrir Tindastól steig út fyrir völlinn á þessari ögurstundu. KR hélt því til sóknar með þrjár sekúndur eftir af leiknum og það var alveg sama þó svo að Þorvaldur Orri hafi klúðrað báðum sínum vítaskotum, tíminn var of naumur fyrir Tindastól. Lokatölur hér úr Smáranum 87-85 fyrir KR sem mætir Stjörnunni í úrslitum á laugardaginn. Atvik leiksins Það verður að vera þessi karfa Þóris undir lok leiksins. Tóti Túrbó fann heldur betur þennan víðfræga túrbó-gír sinn en þessi sigurkarfa hans er auðvitað ekkert nema gargandi snilld eins og Gaupi myndi segja. Hann steig heldur betur upp þegar liðið hans þurfti á honum að halda en hann skorar síðustu sex stig KR í kvöld. Stjörnur og skúrkar Adomas Drungilas var frábær í kvöld fyrir Tindastól og hefði hann náð að leika aðeins meira þá er ég nánast viss um að Tindastóll hefði farið með sigur af hólmi. Drungilas var 21 stig og 12 fráköst. Taiwo Badmus kom næstur hjá Stólunum en hann var með 22 stig og 11 fráköst. Hjá KR var það Þórir Þorbjarnarson sem dró vagninn, sérstaklega undir lok leiksins. Þórir var með 22 stig og reif niður 7 fráköst. Lettarnir Linards Jaunzems og Toms Leimanis áttu einnig mjög góðan leik fyrir KR í dag. Ef ég þarf að velja einhvern skúrk þá verður það að vera Davis Geks fyrir að hafa stigið út fyrir þegar þrjár sekúndur voru eftir af leiknum. Ég eiginlega trúi því ekki að hann hafi átt að fá boltann þarna í lokasókninni enda var hann búinn að vera kaldur í kvöld og þetta kórónaði eiginlega hans slæma dag. Dómarinn Erfiður leikur að dæma og vissulega margir í stúkunni með aðrar skoðanir en þeir félagar oft á tíðum í kvöld. Skiluðu þessu vel af sér. Stemning og umgjörð Bikarvikan er auðvitað afar skemmtileg og stemningin var vægast sagt góð í kvöld hér í Smáranum. Umgjörðin var hin allra glæsilegasta hjá KKÍ í dag og þá var heldur betur glatt á hjalla hjá stuðningsmönnum beggja liða sem fjölmenntu í stúkuna. Maður myndi halda að það hafi heyrst minna í stuðningsfólki Tindastóls í ljósi ferðalagsins á þriðjudegi en svo var aldeilis ekki, ég veit reyndar ekki af hverju maður myndi halda það miða við gengi liðsins á undanförnum árum og hversu ótrúlega vel er mætt alltaf hjá liðinu sama hvar leikið er. „Núna erum við í lægð og þau eru á bakvið okkur“ Það var augljóslega þungt yfir Arnari Guðjónssyni, þjálfara Tindastóls, eftir þetta svekkjandi tap í kvöld. „Mín fyrstu viðbrögð eftir þetta svekkjandi tap er bara hvað það er sárt að vera ekki að fara að spila hér á laugardaginn en á sama tíma þá óska ég KR til hamingju.“ Segir Arnar strax að leik loknum. Tindastóll var að elta nánast allan leikinn en hélt sér þó alltaf inni í leiknum. Liðið náði komst yfir þegar skammt var eftir af leiknum og í rauninni benti margt til þess að liðið væri að fara að stela þessu en því miður fyrir Tindastól þá tókst það ekki og sigurinn féll fyrir KR. „Það er auðvitað svekkjandi að ná ekki að fylgja eftir þessu augnabliki undir lokin þar sem hlutirnir virtust vera að falla með okkur. Mér fannst við gera vel á þessum kafla en á sama tíma þá gerðum við ekki nógu vel í að koma okkur á vítalínunna á meðan þeir voru að skora stig úr vítum í fjórða leikhluta og fá auðveld stig þar þegar pressan var sem mest. Mér fannst það breyta miklu.“ Það verður að segjast að Tindastóll á rosalega stuðningsmenn sem láta það ekki vefjast fyrir sér að ferðast 300 kílómetra til að styðja liðið sitt á þriðjudegi. Arnar þakkar á afar innilegan hátt fyrir stuðninginn í kvöld sem hann segir að skipti liðið öllu máli. „Það er auðvitað ekki sjálfgefið og við eigum stórkostlegt fólk sem stendur með okkur í blíðu og stríðu. Núna erum við í lægð og þau eru á bakvið okkur, þau eiga eftir að hjálpa okkur að spyrna okkur frá botninum og hjálpa okkur að bæta okkur. Þau skipta okkur öllu máli og þau eru ástæðan fyrir því að við erum að þessu. Okkur langar að gera vel fyrir þetta fólk. Það er mjög leiðinlegt að geta ekki gefið þeim leik á laugardaginn en vonandi gera stelpurnar það á morgun.“ VÍS-bikarinn KR Tindastóll