Atvinnulíf

Þessir þrír drepa alla góða fundi

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Það er svo margt að breytast í atvinnulífinu að nú er víst ekki seinna vænna en að fara að læra um hvernig fundarfyrirkomulag þarf að breytast. En sumt virðist þó ekki breytast. Til dæmis þessir þrír fundarmenn sem alltaf tekst að drepa alla góða fundi.
Það er svo margt að breytast í atvinnulífinu að nú er víst ekki seinna vænna en að fara að læra um hvernig fundarfyrirkomulag þarf að breytast. En sumt virðist þó ekki breytast. Til dæmis þessir þrír fundarmenn sem alltaf tekst að drepa alla góða fundi. Vísir/Getty

Þær eru ófáar bækurnar eða ritin sem hafa verið gefin út um fundi og fundarmenningu. Í raun hefur svo mikið verið rætt og ritað um fundi að ætla mætti að nokkurn veginn allt hafi verið sagt nú þegar í þeim efnum.

En því er nú öðru nær.

Því tímarnir breytast og mennirnir með.

Eða kannski....ekki?

Nýverið kom út leiðbeinandi bók um fundi eftir skipulagsfræðinginn Rebeccu Hinds, Your Best Meeting Ever: 7 Principles for Designing Meetings That Get Things Done.

Í bókinni segir Hinds að ýmislegt í því fyrirkomulagi funda sem við þekkjum sé úr sér gengið.

Úrelt.

Endurspeglar tímana sem voru. Ekki þá sem verða.

Fjarvinna, sjálfvirknivæðing, gervigreindin, nýjar kynslóðir, ný viðhorf og svo framvegis.

 Listi breytinga er endalaus.

Þó eru það þrjár týpur fundarmanna sem Hinds bendir á að nái alltaf að drepa alla góða fundi.

Með hegðun sem hún segir óviðunandi (e. toxic).

Þessir þrír fundarmenn eru:

Einvaldið.

Þessi fundarmaður er oftast háttsettur; yfirmaður, stjórnandi, sérfræðingur. Sem talar snemma á fundum, talar mikið og talar þannig að hans sjónarmið telst sjálfkrafa „rétt.“

Sem er alls ekki gott, því ekki aðeins dregur það úr líkunum á að önnur sjónarmið heyrist, heldur verður fundurinn frekar eins og einhvers konar staðfestingar-athöfn frekar en samvinna eða samtal. 

Vanhæfi fundarstjórinn.

Þessi fundarmaður verður að teljast sígilt vandamál. En vanhæfur fundarstjóri er sá sem leiðir fund sem endar með að hafa ekki skýran tilgang, dagskrá eða ákvörðunarferli.

Þið þekkið þessa fundi; fólk endar með að fara út af þeim pirrað, orkulaust og hættir almennt að nenna fundum, lærir að missa trú á þeim. 

Ofstopinn.

Við notum í raun fleiri slanguryrði yfir þessar týpur en íslensk orð. Til dæmis tölum við um að einhver sé bersevísir (þ.besserwissen) eða að einhver sé algjör bullí (e. bullie). 

Þennan fundarmann þekkja reyndar allir. En hann er sá sem truflar stöðugt, talar niður til annarra, einokar umræðuna eða sýnir yfirgang. 

Ríkjandi í okkur flestum er hins vegar það að forðast neikvæð viðbrögð. Sem þýðir að einn ofstopi á fundinum leiðir oft til þess að aðrir þegja og bestu hugmyndirnar komast ekki fram. 

Þannig að hvað svo sem nýjum skipulagsfræðum líður eða aðrar stórtækar breytingar í atvinnulífinu, erum við þó ekki komin lengra en það að gamalkunnug hegðun sem við höfum þekkt í áratugi, er enn að orsaka það að góðir fundir geta auðveldlega farið fyrir bí.

Uppfært: Orðið besserwissen er þýskt að uppruna en ekki danskt eins og sagt var í upphaflegri útgáfu.


Tengdar fréttir

Góð ráð gegn mánudagsvinnukvíðanum

Þótt við séum ánægð í vinnunni okkar kannast margir við að finna fyrir kvíða þegar líður á helgarfríið, hnútur sem stækkar á sunnudagskvöldum og er ekki enn farinn þegar að við mætum til vinnu á mánudagsmorgni.

Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum

Að vinna á draumavinnustaðnum er geggjuð upplifun. Að hlakka til hvers dags til að fara að vinna og upplifa daginn sem ánægjuna eina: Svo gaman að vinna, svo frábær vinnustaður.

Eitraður starfsmaður og góð ráð

Það er stundum talað um eitraða vinnustaðamenningu. Eða eitraða stjórnarhætti. En hvað með stöðuna þegar stjórnandi er með eitraðan starfsmann?

Þrjú snilldarráð fyrir góð samskipti

Góð samskipti eru alltaf lykilatriði. Hvort heldur sem er í leik eða starfi. Við viljum öll standa okkur sem best í góðum samskiptum en eigum það mögulega til að gleyma okkur. 

Góð ráð fyrir lata starfsmenn

Við eigum okkur öll okkar daga. Já, svona leti-daga. Mætum til vinnu og erum hálf löt allan daginn. Komum litlu í verk. Eigum erfitt með að einbeita okkur. Erum þreytt. Eða með hugann annars staðar. Sem betur fer, eru leti-dagarnir ekki viðvarandi. Daginn eftir mætum við til vinnu á ný, galvösk og brettum upp ermar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×