Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 3. febrúar 2026 21:57 Sérfræðingur um konungleg málefni segir að umræðan um hvort norska krúnan eigi yfir höfuð rétt á sér vegna hneykslismála þegar farna af stað. Hún hefur aðallega verið borin uppi af vinstri flokkum í þinginu. Vísir/Anton/Getty Sonur norsku krónprinsessunnar neitaði fyrir dómi í dag að hafa framið alvarlegustu ofbeldisbrotin sem hann er ákærður fyrir, eins og nauðgun og líkamsárás. Sérfræðingur um konungleg málefni segir málið allt það alvarlegt að krúnan sjálf gæti verið í hættu.
Fyrsti dagur réttarhalda yfir Maríusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar, fer fram í skugga afhjúpana Epstein-skjalanna þar sem krónprinsessan sjálf er fyrirferðarmikil. Høiby sætir ákæru í þrjátíu og átta liðum fyrir hin ýmsu brot, meðal annars nauðganir, ofbeldi í nánum samböndum og brot á nálgunarbanni. Mjög hættulegur einstaklingur Hann játaði að hafa brotið gegn nálgunarbanni. Þá viðurkenndi hann að hafa framið þau brot sem hann er ákærður fyrir sem eru smávægilegri. Nauðganirnar eru sagðar hafa átt sér stað á árunum 2018 - 2024. Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir er sérfræðingur í konunglegum málefnum. Hún hefur legið yfir fréttum af norsku konungsfjölskyldunni. „Allt í einum pakka þá er þetta bara mjög hættulegur einstaklingur. Þetta er algjör harmleikur og mjög alvarlegt mál.“ „Verði hann sakfelldur fyrir þetta allt saman þá erum við að tala um 16-18 ára fangelsisdóm.“ Epstein-skjölin sýna náið vinasamband Fréttirnar um vinasamband Mette-Marit krónprinsessu og Jeffrey Epstein bæta síðan gráu ofan á svart. „Það kemur fram að þau hafi átt í verulega miklum samskiptum. Minnst er á nafn hennar 900 sinnum í tölvupóstum þeirra sem er náttúrulega dálítið mikið, en ekki nóg með það, þá hefur hún búið í húsinu hans á Flórída, sem gefur til kynna að þetta hafi verið meiri vinskapur en áður hafði verið látið liggja að.“ Margir efast um hvort Mette geti orðið drottning Norskir fjölmiðlar eru undirlagðir fréttum um málið og þykir það hið mesta hneyksli. Ragnheiður segir málið hafa vakið upp spurningar um hvort réttlætanlegt sé að hafa krúnuna yfir höfuð. „Konungshjónin Haraldur og Sonja hafa verið mjög vinsæl í Noregi og eru almennt dýrkuð og dáð en mál Mette-Marit, krónprinsessu, hafa náttúrulega varpað skugga á hennar störf og spurningar vaknað um hvort hún geti yfir höfuð orðið drottning eftir þetta allt saman. Skoðanakannanir benda til þess að fylgi við krúnuna fari minnkandi. En hins vegar sem „royalisti“ þá gleðst ég yfir því að Hákon, maðurinn hennar, komi vel fyrir. Ég dáist að því. Hann virðist vera algjör klettur.“ Hversu djúpt ristir óánægja almennings? „Umræður voru um það í norska þinginu í dag um framtíð krúnunnar. Ég hef ekki fengið niðurstöður enn þá. Síðustu fréttir sem ég sá sýndu að þetta var frekar tómlegur salur og meira vinstri flokkarnir að ræða þetta en umræður eru farnar í gang þannig að það verður spennandi að fylgjast með hvernig þetta fer.“ Er krúnan í hættu? „Ég hefði ekki búist við því að þurfa að svara því fyrir ári síðan en jú, ég myndi segja að þetta hafi reynst mjög erfitt og vakið upp miklar spurningar. Hún er örlítið í hættu núna, myndi ég telja.“
Noregur Mál Mariusar Borg Høiby Kóngafólk Mál Jeffrey Epstein Tengdar fréttir Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Í dag hefjast réttarhöld í Noregi yfir Mariusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar Mette Marit, en hann sætir ákæru 38 liðum fyrir ýmis brot, meðal annars nauðgun og önnur ofbeldisbrot. Hann neitar sök vegna alvarlegustu ákæruliðanna. Löng biðröð myndaðist fyrir utan héraðsdóminn í Osló í morgun þar sem réttarhöld fara fram en bæði norskir og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt málinu mikinn áhuga. 3. febrúar 2026 08:14 Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Vonbrigði norsku þjóðarinnar með krónprinsessu landsins eftir opinberanir í Epstein-skjölunum og málaferli gegn syni hennar rista djúpt, að sögn Íslendings í Noregi. Norðmenn taki því illa þegar orðstír þjóðarinnar sé í húfi. 2. febrúar 2026 22:31 Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Alríkissaksóknari sem lagði til árið 2007 að Jeffrey Epstein yrði ákærður í 32 liðum, sagði meðal annars að Epstein hefði hótað einu fórnarlamba sinna, sextán ára stúlku, og sagt að „slæmir hlutir“ gætu komið fyrir hana, ef hún talaði við yfirvöld. Hann var þá sakaður um að hafa brotið á fjölda stúlkna og ungra kvenna yfir sex ára tímabil. 2. febrúar 2026 17:00 Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira
Ákærður í 38 liðum og löng biðröð fyrir utan réttinn í Osló Í dag hefjast réttarhöld í Noregi yfir Mariusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar Mette Marit, en hann sætir ákæru 38 liðum fyrir ýmis brot, meðal annars nauðgun og önnur ofbeldisbrot. Hann neitar sök vegna alvarlegustu ákæruliðanna. Löng biðröð myndaðist fyrir utan héraðsdóminn í Osló í morgun þar sem réttarhöld fara fram en bæði norskir og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt málinu mikinn áhuga. 3. febrúar 2026 08:14
Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Vonbrigði norsku þjóðarinnar með krónprinsessu landsins eftir opinberanir í Epstein-skjölunum og málaferli gegn syni hennar rista djúpt, að sögn Íslendings í Noregi. Norðmenn taki því illa þegar orðstír þjóðarinnar sé í húfi. 2. febrúar 2026 22:31
Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Alríkissaksóknari sem lagði til árið 2007 að Jeffrey Epstein yrði ákærður í 32 liðum, sagði meðal annars að Epstein hefði hótað einu fórnarlamba sinna, sextán ára stúlku, og sagt að „slæmir hlutir“ gætu komið fyrir hana, ef hún talaði við yfirvöld. Hann var þá sakaður um að hafa brotið á fjölda stúlkna og ungra kvenna yfir sex ára tímabil. 2. febrúar 2026 17:00