Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Bjarki Sigurðsson skrifar 3. febrúar 2026 23:30 Halldór mælir ekki með að hlaða símann yfir nóttina. Samsett/Sýn/Getty Ýmislegt er hægt að gera til að vernda rafhlöður í símum, að sögn sérfræðings, en uppfærslur eiga það til að hægja á tækjum og stytta rafhlöðutímann. Hneykslismál hjá einum stærsta framleiðanda heims varð til þess að hann bætti ráð sitt.
Nýlega gaf bandaríski tæknirisinn Apple út uppfærslu á stýrikerfi iPhone-símanna vinsælu, IOS 26.2. Í kjölfar uppfærslunnar fóru að berast fregnir af því að rafhlöður símanna tæmdust hraðar en áður. Þetta á sér þó eðlilegar skýringar að sögn sérfræðings og tengist því að eftir að tækið er uppfært þarfnast það ögn meiri krafts til að vinna. „Það var náttúrulega þetta fræga battery gate 2016-17 sem margir kannast við þar sem framleiðandi var að hægja á símanum til þess að batteríið entist betur. Í framhaldi af því komu fram alls kyns bætingar, hjá Apple í þessu tilviki. Þeir bættu upplýsingagerðina mjög mikið þannig að núna geta viðskiptavinir fylgst með batteríheilsu sinni og fær tilkynningar í símann, þeir eru mjög meðvitaður um hvað er að gerast með rafhlöðuna,“ segir Halldór Steinsen, eigandi IcePhone. Þá séu alltaf einhverjir sem lenda í vandræðum þegar kólnar í veðri. Til að fara betur með rafhlöðuna, og koma í veg fyrir tíð símaskipti eða viðgerðir, er hægt að gera ýmislegt. „Það er mjög gott að halda rafhlöðunni í tuttugu til áttatíu prósentum. Ekki hlaða á nóttunni, ekki vera í símanum þegar þú ert að hlaða hann því það býr til aukinn hita. Þannig að aukinn hiti og þessi aldur þar sem viðnámið eykst í efnaferlinu, það er það sem að þreytir batteríið.“
Tækni Húsráð Mest lesið Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Innlent Hundur fékk tafarlausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman Innlent Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Innlent Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Innlent Lést í sprengingunni Innlent Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Innlent Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Innlent Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Innlent Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Innlent Trump gefur Írönum tveggja daga niðurtalningu Erlent Fleiri fréttir Fækkun aðgerða áfall fyrir marga endósjúklinga Tekist á um kjarasamningana Rannsaka meint brot gegn barni í leikskóla á Álftanesi Hundur fékk tafarlausa þjónustu en krabbameinssjúk kona beið mánuðum saman Hnífstunguárás í miðbænum, endómetríósa og hótanir Trumps Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Deila um menningarhús skekur Skagafjörð Hringveginum lokað, snjóflóð og flughálka Nýsköpun, kjarasamningar og afnám áminningarskyldu Fáskrúðsfjarðargöngin opin á ný Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Snekkju skattsvikarans meinuð hafnarkoma á Akureyri Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Framboðslisti Vinstrisins í Reykjavík kynntur Boða lokanir á hringveginum vegna veðurs Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Atvinnurekendur farnir að nota gervigreind til að sía umsóknarflóðið Lögregla metur ógn af erlendum áhrifum á ESB-atkvæðagreiðslu Guðrún um Þorgerði: „Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi“ Veittu ferðamönnum í vanda aðstoð við Héðinsfjarðargöng Rannsókn á banaslysinu í Fóðurblöndunni gæti tekið vikur og jafnvel mánuði Dapurlegt að fylgjast með hægriflokkum sem sameinast á jaðrinum Slysið í Fóðurblöndunni, möguleg afskipti af þjóðaratkvæðagreiðslu og enn meira óveður Lokað fyrir umferð um Öxnadalsheiði Skekkja hækki iðgjöld og kosti samfélagið milljarða Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fríhöfnin gjörsamlega galtóm „Auðvitað mikið áfall“ Sjá meira