Ákvörðun peningastefnunefndar að halda vöxtum óbreyttum í 7,25 prósent, studd af öllum nefndarmönnum, var að viðbúin eftir að verðbólgan hafði hækkað tvo mánuði í röð úr 3,7 í 5,2 prósent. Hlé hefur því verið gert á skammvinnu vaxtalækkunarferli Seðlabankans sem fór af stað á nýjan leik í nóvember í fyrra.
Greinendur og hagfræðingar allra bankanna nema Landsbankans – þeir höfðu spáð 25 punkta hækkun – töldu að nefndin myndi halda vöxtunum óbreyttum í þetta sinn.
Í yfirlýsingu hennar í morgun segir hún að þótt hækkun verðlags í janúar megi að miklu leyti rekja til breyttrar gjaldtöku hins opinbera af nýjum bifreiðum séu verðhækkanir á tiltölulega breiðum grunni. „Undirliggjandi verðbólguþrýstingur er því áfram þrálátur þótt hægt hafi á efnahagsumsvifum og skýr merki séu um kólnun á vinnumarkaði.“
Þá bætir peningastefnunefndin við að samkvæmt uppfærði spá Seðlabankans sé „spennan í þjóðarbúinu horfin“ og útlit fyrir tiltölulega hægan hagvöxt samhliða því að verðbólgan mun hjaðna þegar líður á árið. „Þrátt fyrir tímabundna aukningu verðbólgu í byrjun árs hafa verðbólguhorfur til lengri tíma lítið breyst. Óvissa er þó mikil enda launahækkanir enn töluverðar og verðbólguvæntingar mælast áfram yfir markmiði,“ segir í yfirlýsingunni.
Undirliggjandi verðbólguþrýstingur er því áfram þrálátur þótt hægt hafi á efnahagsumsvifum og skýr merki séu um kólnun á vinnumarkaði.
Framsýn leiðsögn er óbreytt frá fyrri fundi í nóvember en peningastefnunefndin segir að „frekari ákvarðanir um lækkun vaxta bankans eru háðar því að skýrar vísbendingar komi fram um að verðbólga sé að hjaðna í 2,5 prósent markmið bankans.“
Í nýjum Peningamálum Seðlabankans, sem birtust samhliða vaxtaákvörðuninni í morgun, kemur fram að talið sé að hagvöxtur í fyrra hafi verið 1,3 prósent, eða um 0,4 prósentustigum meiri en áður var talið. Horfur fyrir árið 2026 hafa einnig batnað og búist er við að landsframleiðsla aukist um 2 prósent milli ára, en áður var spáð 1,6 prósent. Á móti er gert ráð fyrir að hagvöxtur verði minni á næsta ári en talið var í nóvember, eða 2,2 prósent.
Störfum er hætt að fjölga og atvinnuleysi þokast áfram upp. Vísbendingar eru um að atvinnuhorfur hafi versnað enn frekar undanfarið, að sögn Seðlabankans. Talið er að atvinnuleysi aukist áfram og verði að meðaltali 4,8 prósent í ár.
Verðbólguspá bankans gerir núna ráð fyrir að hún minnki á ný á komandi mánuðum og verði fimm prósent á fyrsta ársfjórðungi sem er töluvert meira en gert var ráð fyrir í nóvember. Lakari upphafsstaða þýðir að hún verður einnig meiri á næstu fjórðungum en þá var spáð. Talið er að verðbólga fari ekki undir þrjú prósent fyrr en í byrjun næsta árs og verði komin í grennd við markmið um mitt árið.
