Búið að opna ESB pakkann: Sambandsríkið Evrópa og endalok íslensks fullveldis Eggert Sigurbergsson skrifar 4. febrúar 2026 12:02 Um árabil hefur sá frasi verið tugginn í íslenskri umræðu að við eigum að „kíkja í pakkann“ varðandi aðild að Evrópusambandinu. Röksemdin hefur verið sú að við getum alltaf hafnað samningnum ef hann hentar okkur ekki. En í dag er staðan gjörbreytt. Nýlegar fréttir og yfirlýsingar frá forystumönnum ESB, með Mario Draghi í broddi fylkingar, hafa sýnt okkur innihald pakkans áður en hann er opnaður. Og það sem þar blasir við er ekki viðskiptasamningur sjálfstæðra ríkja, heldur stofnskrá nýs stórveldis: Bandaríkja Evrópu (United States of Europe). Frá samstarfi til ríkisvalds Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóri Evrópu og einn helsti hugmyndafræðingur sambandsins í dag, hefur kveðið upp úrskurðinn: Evrópa verður að þróast frá bandalagi yfir í sambandsríki til að geta staðist samkeppnina við Kína og Bandaríkin. Þetta er ekki tæknilegt atriði; þetta er grundvallarbreyting á eðli sambandsins. Sambandsríki er eitt ríki. Í slíku ríki eru aðildarlöndin ekki lengur fullvalda þjóðir í þjóðaréttarlegum skilningi, heldur fylki sem lúta miðstýrðu valdi alríkisstjórnar. Auðlindirnar verða eign alríkisins Fyrir Ísland er þessi framtíðarsýn martröð. Grundvallarstoð íslensks efnahagslífs og velferðar er yfirráðaréttur okkar yfir auðlindum hafs og lands. Í sambandsríki gilda önnur lögmál en í bandalagi. Ef horft er til Bandaríkjanna sem módels – eins og Draghi gerir – þá hafa fylki aðeins yfirráð yfir örfáum sjómílum við strendur sínar. Í Bandaríkjum Evrópu yrði 200 mílna efnahagslögsaga Íslands ekki lengur „íslensk“. Hún yrði skilgreind sem alríkislögsaga. Fiskurinn, orkan og málmar á hafsbotni yrðu sameiginleg eign sambandsríkisins. Það þýðir að ákvarðanir um nýtingu miðanna yrðu ekki teknar í Reykjavík heldur í Brussel. Og það sem verra er: Hagnaðurinn – auðlindarentan sem stendur undir heilbrigðiskerfinu okkar og vegakerfinu – myndi renna í sameiginlegan ríkissjóð Sambandsríkisins. Íslendingar fengju ef til vill molana, en kökunni yrði skipt á meginlandinu. Orkan og fullveldið Sama lögmál gildir um orkuna. Í nýju módeli Draghis er gert ráð fyrir sameiginlegri iðnaðarstefnu og orkuöryggi. Í slíku umhverfi gæti Ísland ekki neitað lagningu sæstrengs. Ef þýskur iðnaður þarf orku, þá tekur alríkið ákvörðun um að sækja hana. Verðjöfnun yrði þvinguð fram, sem þýðir að íslensk heimili myndu greiða sama verð fyrir rafmagn og neytendur í Berlín eða París. Samkeppnisforskot íslensks iðnaðar yrði þurrkað út. Engin leið út Alvarlegasta breytingin við stofnun Bandaríkja Evrópu er þó sú að úr slíku sambandi er ekki hægt að ganga. Þú segir þig ekki úr ríki. Þegar fullveldið hefur verið framselt til alríkisstjórnar er leiðin til baka lokuð. Við værum ekki aðeins að fórna sjálfstæði okkar, heldur sjálfstæði allra ókominna kynslóða. Hættum viðræðum strax Í ljósi þessara frétta er krafa stjórnmálamanna um að „halda áfram viðræðum“ ekki aðeins barnaleg, hún er stórhættuleg. Við þurfum ekki að kíkja í pakkann. Mario Draghi er búinn að opna hann fyrir okkur. Í pakkanum er afsal á yfirráðum yfir Íslandsmiðum, samruni orkukerfa og endalok Íslands sem fullvalda ríkis. Þeir sem enn tala fyrir aðild verða að svara því hvort þeir séu tilbúnir að Ísland verði fylki í stórveldi þar sem auður hafsins rennur í erlenda ríkiskassa. Öllum tilraunum til aðildarviðræðna verður að hætta tafarlaust. Ísland á ekki heima í Bandaríkjum Evrópu. Höfundur lærði viðskipta- og sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Evrópusambandið Eggert Sigurbergsson Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Borgarlínan er háskaleg tilraun Karólína Jónsdóttir Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Þakklátur fyrir traustið Valdimar Víðisson Skoðun Skoðun Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar Skoðun Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Garðabær má ekki staðna Viðar Kristinsson skrifar Skoðun Takk Reykvíkingar – stolt af því sem við áorkuðum saman Ellen Calmon skrifar Skoðun Fólkið í Hveragerði skiptir öllu máli Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Af hverju ætti ungt fólk að kjósa 16. maí? Gunnar Pétur Haraldsson skrifar Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Sem tveggja barna móðir Sigríður Þóra Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius skrifar Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason skrifar Skoðun Þakklátur fyrir traustið Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvandinn er mannanna verk Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar
Skoðun Þegar kerfið ver kerfið en ekki borgarana. Reynslusaga Intuens af íslensku stjórnkerfi síðustu þrjú ár Steinunn Erla Thorlacius skrifar