Fjórar með nóró daginn fyrir fyrsta leik á ÓL Sindri Sverrisson skrifar 4. febrúar 2026 17:18 Finnska kvennalandsliðið fagnaði bronsverðlaunum á síðustu Vetrarólympíuleikum. Getty/Elsa Finnska kvennalandsliðið í íshokkí hefur orðið fyrir barðinu á nóróveirunni á versta tíma, eða daginn fyrir fyrsta leik liðsins á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu. Önnur lið reyna nú að forðast smit.
Maarit Valtonon, læknir finnska Ólympíuhópsins, sagði við finnska miðla að búið væri að setja hina veiku keppendur í einangrun á hótelherbergjum þeirra í Ólympíuþorpinu. Þá hafa öll svæði sem þeir voru á verið sótthreinsuð til að freista þess að hefta frekari útbreiðslu smita. Finnska liðið aflýsti æfingu í dag, sem og fjölmiðlahittingi, vegna málsins, en það verður að koma í ljós í leiknum við Kanada á morgun hve vel mannað lið Finnlands verður. Svíar dvelja á sama stað og Finnarnir og hafa gert ráðstafanir til þess að forðast smit. „Við komumst að því að Finnar væru að glíma við magaflensu. Við vitum líka að Frakkar hafa glímt við eitthvað svipað og að grunur er um það sama hjá Bandaríkjunum,“ sagði Fredrik Joulamo, liðsstjóri sænska Ólympíuhópsins, við Expressen í Svíþjóð. „Ég held að það sé ekki búið að greina það hver ástæðan gæti verið fyrir þessu. Þetta gæti verið tengt mat eða að menn hafi tekið eitthvað með sér,“ sagði Joulamo. „Við reynum núna að komast að því hvar þeir [Finnar] hafa farið um, hvaða lyftur þeir notuðu og hvað við gerum varðandi þvottaherbergið og aðra aðstöðu sem hóparnir deila. Við erum í góðum samskiptum vaðrandi þetta. Svo reynum við bara að forðast alla snertingu við keppendur frá hinum löndunum núna. Notum spritt en þvoum hendurnar líka vel og vandlega. Það er það eina sem hægt er að gera,“ sagði Joulamo.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Íshokkí Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Man. United – Roma | Róm var ekki byggð á einni nóttu Barcelona – Aston Villa | Ósigraðir Villa-menn á Nývangi Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Njarðvík-Grindavík | Íslandsmeistararnir fá toppliðið í heimsókn Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Sjá meira