Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. febrúar 2026 12:03 Guðmundur segir ljóslistaverkin verða sérlega vegleg í ár. Til hægri má sjá Hallgrímskirkju á vetrarhátíðinni 2022. Vísir Árleg vetrarhátíð hefst í kvöld á höfuðborgarsvæðinu þegar kveikt verður á ljóslistaverkum í miðborg Reykjavíkur. Viðburðarstjóri segir hátíðina aldrei hafa verið stærri, 150 viðburðir fara fram þar til á sunnudag en hátíðin samanstendur meðal annars af Safnanótt og Sundlauganótt.
Hátíðin hefst formlega klukkan hálf sjö í kvöld þegar kveikt verður á ljóslistaverkum sem ná frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíg og að Austurvelli. Listaverkin munu lýsa upp miðbæinn frá hálf sjö til hálf ellefu fram á sunnudag. Á morgun fer svo fram Safnanótt þar sem verður fjölbreytt dagskrá frá sex til klukkan ellefu. Guðmundur Birgir Halldórsson verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg segir hátíðina aldrei hafa verið stærri. „Það er mjög mikið í gangi, hún spannar fjóra daga hátíðin en hún er líka út um allt höfuðborgarsvæðið sem skýrir hvað er mikið í gangi. Þetta inniheldur öll söfn, ekki öll söfn en mjög mörg söfn á höfuðborgarsvæðinu, þetta eru hátt í fimmtíu söfn sem eru með dagskrá og svo tvinnum við í þetta dagskrá í sundlaugum og svo ljósalistaverkum sem verða hér í miðbæ Reykjavíkur og í Kópavogi.“ Hann segir ljóslistaverkin sjaldan hafa verið eins glæsileg líkt og þetta árið. „Við verðum með opnun í kvöld í garðinum hjá listasafni Einars Jónssonar, það eru til dæmis þrír risastórir myndvarpar sem munu varpa á bygginguna og það verður hægt að breyta henni og eiga við hana sjónrænt og svo fer þetta alveg frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg og endar í ráðhúsinu, og það eru ýmis undarleg ljóslistaverk sem veitir ekki af í þessu skammdegi.“ Ljóslifandi er verk á Ljósaslóð Vetrarhátíðar sem verður á Austurvelli. Frítt í margar sundlaugar Þá munu sundlaugar gegna stóru hlutverki á hátíðinni. Sundlaugamenningunni verður sem dæmi fagnað með sýningu í Þjóðminjasafninu á morgun og þá fer fram vegleg dagskrá á Sundlauganótt. „Unesco samtökin eru búin að viðurkenna sundmenningu Íslendinga sem ómetanlegan þjóðararf og því verður haldið á lofti á vetrarhátíð. Þjóðminjasafnið mun til dæmis fjalla um þetta á fræðilegan hátt og sýna myndir og fleiri gögn en svo verðum við með Sundlauganótt á laugardaginn þar sem er frítt í þó nokkrar sundlaugar og ýmis dagskrá í gangi, það verður slökun, sundballett og DJ-ar, þannig þetta er svona menning sem við erum að halda á lofti á vetrarhátið.“
Reykjavík Kópavogur Mosfellsbær Seltjarnarnes Garðabær Hafnarfjörður Vetrarhátíð Mest lesið Týndi bókstaflega röddinni eftir áratugi af aga Lífið Myndaveisla frá Gleðigöngunni: Borgarstjóri, biskup og risastór flæmingi Lífið Krakkatía vikunnar: Hundar, ber og ælubogi Lífið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Euphoria-stjörnur á Íslandi Lífið Brekkusöngur á jafnsléttu hápunkturinn Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira