Stjórnin treystir Margréti Árni Sæberg skrifar 5. febrúar 2026 16:49 Margrét Jónsdóttir Njarðvík er rektor Háskólans á Bifröst. Vísir/Sara Stjórn Háskólans á Bifröst kveðst harma þá stöðu sem uppi er komin innan skólans. Hún taki stöðuna alvarlega og vilji leita leiða til að koma samtali innan skólans í uppbyggilegan farveg. Stjórnin treysti rektor til að stýra daglegum rekstri skólans.
Harðvítugar deilur hafa geisað í Háskólanum á Bifröst undanfarnar vikur eftir að Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst (FAB) lýsti yfir vantrausti á stjórnsýslu rektors skólans, Margrétar Jónsdóttur Njarðvík. Vanda þurfi til verka Starfsmenn Háskólans á Bifröst segja allt loga stafnana á milli í skólanum; starfsumhverfið sé þrúgandi og réttlætiskennd fólks misboðið. Nokkrir hafa stigið fram á samfélagsmiðlum og tjáð sig um stöðu mála eftir að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor háskólans, greindi frá því í tölvupósti í gær að mál sem nú er til meðferðar hefði hafist með ábendingu um möguleg brot starfsmanna á höfundarrétti frá aðila sem nýtur nafnleyndar. „Það er ljóst að staðan er mjög alvarleg. Stjórnin er með þetta að fullu á sínu forræði og við ætlum að taka þetta föstum tökum. Við gerum okkur grein fyrir því hversu mikilvægt er að taka á þeim trúnaðarbresti sem upp er kominn. Í kjölfar yfirlýsingar Félags akademískra starfsmanna ákvað stjórn háskólans að skipa utanaðkomandi aðila til sáttamiðlunar. Með þessu vill stjórn sýna í verki að málin eru tekin alvarlega en um leið stíga skref í átt að auknu trausti innan háskólans. Við viljum hefja sáttaferli eins fljótt og auðið er en þó þarf að gæta þess að vandað sé til verka,“ er haft eftir Ársæli Harðarsyni, stjórnarformanni skólans. Treysta Margréti Þar segir að stjórnin vinni að því að finna aðila sem nýtur trausts til að stýra því ferli og hafi meðal annars leitað til Félags akademískra starfsmanna Bifrastar um tillögur að slíkum aðilum. Sáttamiðlari muni starfa í umboði stjórnar. Stjórn leggi sig fram við að flýta því ferli og stíga hratt næstu skref. Stjórn treysti rektor til að stýra daglegum rekstri en leggi jafnframt áherslu á að sáttaferlið er á ábyrgð stjórnar. „Okkur Bifrestingum þykir ógnarvænt um skólann. Við höfum staðið saman, með skólanum í rúm hundrað ár í gegnum bæði sigra og áskoranir. Við munum vinna okkur í gegnum þessa áskorun með sama hætti,“ er haft eftir Ársæli.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Skóla- og menntamál Borgarbyggð Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira