Alaska og Birnir sigursæl Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. febrúar 2026 17:04 Marteinn Bangerboy og Birnir tóku á móti verðlaunum fyrir Dyrnar sem bestu plötu ársins. Art Bicnick Tónlistarverðlaun Reykjavík Grapevine voru haldin á skemmtistaðnum Lemmy í gærkvöldi og var hiphop-senan sigursæl. Alaska1867 var valin listamaður ársin, Dyrnar eftir Birni var valin plata ársins og „eh plan“ með Digital Ísland valið lag ársins.
Tónlistarverðlaun The Reykjavík Grapevine eru veitt tónlistarfólki sem þykir hafa skarað fram úr á árinu. Verðlaunin hafa verið haldin árlega frá árinu 2013 og því veitt í fjórtánda sinn í gær. Tilnefnd voru 36 atriði í níu flokkum af dómnefnd sem ritstjórn tímaritsins setti saman. María Rut Reynisdóttir, framkvæmdarstjóri Tónlistarmiðstöðvar og Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, veittu verðlaunin. Góður hópur ánægður með verðlaunin sem Knackered hlaut.Art Bicnick Young Nazareth á leið upp á svið að taka á móti verðlaunum fyrir Digital Ísland.Art Bicnick Þrjár geggjaðar skvísur.Art Bicnick Í dómnefnd í ár sátu Alexander Le Sage de Fontenay, grafískur hönnuður og tónlistarpenni, Ish Sveinsson Houle og Jóhannes Bjarkason, blaðamenn Reykjavík Grapevine, Kristján Guðjónsson, dagskrárgerðarmaður á Rás 1 og Maria-Carmela Raso, tónlistarkona og viðburðarstjóri. Alaska1867 var valin listamaður ársins, Dyrnar með Birni var valin plata ársins, „eh plan“ með Digital Ísland valið lag ársins, Flesh Machine vann fyrir bestu myndrænu framsetningu, quean : kven : queen voru valdir tónleikar ársins, platan Halidome eftir Emmu var valin best geymda leyndarmálið og svo hlaut útvarpsþátturinn Ólátagarður sérstök þakklætisverðlaun. Pródúsentarnir Young Nazareth og Mister Sir ánægðir með að vera verðlaunaðir fyrir lag ársins.Art Bicnick Fleshmachine fengu verðlaun fyrir tónlistarmyndbandið við „Taking My Time“.Art Bicnick Hér að neðan má sjá alla sem voru tilnefndir og sigurvegara í hverjum flokki: Listamaður ársins Alaska1867 Knackered múm Páll Óskar og Benni Hemm Hemm Plata ársins Dyrnar - Birnir History of Silence - múm a place to be - RAKEL Reykjavík Syndrome - Spacestation Lag ársins „SMS“ - Alaska 1867 „Eitt af blómunum“ - Páll Óskar og Benni Hemm Hemm “eh plan” - Digital Ísland „HJÁ ÞÉR“ - Kusk & Óviti Besta myndræna framsetning ársins Listamennirnir Birnir, Doddi digital og Ragnhildur Stefánsdóttir fyrir plötuumslag Dyranna Flesh Machine fyrir tónlistarmyndbandið „Taking My Time í leikstjórn Snæfríðar Sólar Gunnarsdóttur Ólafur Arnalds & Loreen fyrir „SAGES“ í leikstjórn Þóru Hilmarsdóttur Kári Egils fyrir „Midnight Sky“ í leikstjórn Diddu Flygenring Bestu tónleikar Norðanpaunk Sátan Kárahátíð með Spider Network quean : kven : queen með Sóleyju Stefánsdóttur og Samönthu Shay Best á tónleikum Flesh Machine Knackered symfaux Unfiled Best geymda leyndarmálið Emma fyrir plötuna Halidome Godchilla fyrir Psionic Dreams Oh Mama fyrir Dagskrá Woolly Kind fyrir Í hringi Listamenn til að fylgjast með BKPM Digital Ísland Fríd Julian Civilian Þakklætisverðlaun fyrir vel unnin störf á vettvangi tónlistar marvaða Útvarpsþátturinn Ólátagarður Óli Dóri Reykjavík Record Shop
Tónlist Reykjavík Menning Fjölmiðlar Mest lesið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira