Viðskipti innlent

Hækka láns­hæfis­ein­kunn Ís­lands í ljósi bættrar stöðu ríkis­fjár­mála

Eiður Þór Árnason skrifar
Fjármála- og efnahagsráðuneytið.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið. Vísir

Matsfyrirtækið Fitch Ratings hækkaði í dag lánshæfiseinkunn Íslands úr A í A+ með stöðugum horfum. Uppfærslan er sögð endurspegla bætta stöðu ríkisfjármála og spá um samdrátt í skuldum ríkissjóðs sem byggi á þeirri áherslu stjórnvalda að færa sig í átt að auknu jafnvægi í ríkisfjárlögum.

Þá hefur fyrirtækið afturkallað áframhaldandi mat á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs. Þetta kemur fram í tilkynningum frá matsfyrirtækinu og fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Mat Fitch sýni að fjárlagahallinn hafi lækkað úr 8,8 prósentum af vergri landsframleiðslu árið 2020 í 1,3 prósent árið 2025. Fyrirtækið á von á því að það dragi enn frekar úr halla á árunum 2026 til 2027 vegna þjóðhagslegu stöðugleikareglunnar sem takmarki raunvöxt útgjalda, samþykktra tekjuráðstafana og víðtækrar pólitískrar samstöðu um að ná hallalausum fjárlögum árið 2027.  

Ríkisskuldir haldi áfram að lækka

„Lánshæfiseinkunn Íslands og mat á stöðugum horfum byggist á auðugu hagkerfi, traustum stjórnarháttum, sterkum stofnunum og sterkum efnahagsreikningum einkageirans. Á móti þessum styrkleikum vegur smæð hagkerfisins og hversu berskjaldað það er fyrir áföllum í stökum atvinnugreinum,“ segir í tilkynningu Fitch.

Hlutfall ríkisskulda af vergri landsframleiðslu lækkaði úr 60,4 prósentum í 50,4 prósent milli áranna 2024 og 2025, samkvæmt mati Fitch, en hlutfallið var hæst 76,1 prósent árið 2020. Fitch gerir ráð fyrir því að hlutfallið lækki í 45,9 prósent árið 2027. 

Fitch gerir einnig grein fyrir verðbólguáskorunum sem hafi áhrif á íslenskt hagkerfi en spáir 1,5 prósenta hagvexti á Íslandi árið 2026.

Fréttin hefur verið uppfærð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×