Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. febrúar 2026 07:02 Erling Haaland hjá Manchester City í baráttu um boltann við Andrew Robertson hjá Liverpool í fyrri leik liðanna. Getty/Carl Recine Stórleikur helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og einn af þeim stóru á tímabilinu fer fram í dag þegar Liverpool fær Manchester City í heimsókn á Anfield. Þessi félög hafa unnið átta síðustu titlana í deildinni en að þessu sinni eru bæði lið í óvenjulegri stöðu.
Þetta er að öllum líkindum stærsti rígur ensku úrvalsdeildarinnar undanfarin ár en ekki lengur einvígi Jürgen Klopp gegn Pep Guardiola, heldur á milli Arne Slot og Guardiola. Það sem gerir þennan leik öðruvísi en síðustu ár er staðan á þessum tveimur liðum. Nær alltaf hafa þau mæst þar sem annað liðið er á toppnum og hitt skammt undan. Núna er hvorugt liðið í góðu formi og hafa bæði aðeins unnið einn af síðustu sex deildarleikjum sínum. City er í mun betri stöðu í töflunni Manchester City er þó í mun betri stöðu í töflunni en liðið eltir topplið Arsenal og þarf nauðsynlega á sigri að halda eftir að Arsenal komst níu stigum á undan þeim með sigri í gær. Guardiola er enn að reyna að finna lausnir á ójafnvægi liðsins og almennum vandræðum í varnarleiknum en ofan á það hefur norski framherjinn Erling Haaland aðeins skorað tvö mörk í síðustu tíu leikjum í öllum keppnum, þar af aðeins annað þeirra úr opnum leik. Haaland átti aðeins tvö skot á níutíu mínútum gegn Tottenham um síðustu helgi í 2-2 jafntefli á útivelli en góðu fréttirnar fyrir sóknarleikinn eru að þeir Antoine Semenyo og Rayan Cherki eru að spila frábærlega um þessar mundir. Staðan er mjög svipuð hjá Liverpool, ekki síst hvað varðar varnarvandamál og heildarjafnvægi liðsins. Þeir eiga líka framherja sem er ekki að finna sig. Salah gengur illa að skora Mohamed Salah, sem hefur átt í erfiðleikum síðan hann kom til baka úr Afríkukeppninni þar sem Egyptaland lenti í fjórða sæti. Hann hefur klúðrað einu dauðafæri í hverjum leik sem hann hefur spilað síðan hann kom til baka frá Marokkó, og það er ljóst að þetta lið er núna að miklu leyti lið Florians Wirtz og Hugos Ekitike. Þeir hafa verið framúrskarandi undanfarið og verða mikil ógn við fjögurra manna varnarlínu City. Liverpool er í sjötta sæti töflunnar og þarf að berjast hart fyrir sæti í Meistaradeildinni, í baráttu við Chelsea, Manchester United og mörg önnur lið í mjög jöfnum lokaspretti. United og Chelsea unnu bæði í gær. Liverpool þarf því helst að vinna City auk þess að bæta fyrir tapið fyrir City í fyrri leik liðanna í Manchester. Leikur Liverpool og Manchester City hefst klukkan 16.00 og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Liverpool FC Manchester City Mest lesið Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Enski boltinn Fleiri fréttir Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Sjá meira