Manchester City

Manchester City

Fréttir af enska fótboltaliðinu Manchester City.

Fréttamynd

Verður Kepa aftur skúrkurinn?

„Ég hefði tekið hann út af með handafli,“ sagði John Terry, fyrrverandi fyrirliði Chelsea, í setti Sky Sports eftir tap Chelsea fyrir Manchester City í úrslitum deildabikarsins árið 2019. Þar er rætt um Kepa Arrizabalaga, þáverandi markvörð Chelsea, sem var skúrkurinn í þeim leik . Hann mætir City aftur í dag í úrslitaleik keppninnar.

Enski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Báðir þurfa bikar

Fyrrum félagar mætast er Arsenal og Manchester City keppa um enska deildabikartitilinn á Wembley í dag. Bæði Mikel Arteta og Pep Guardiola þurfa á titli að halda.

Enski boltinn
Fréttamynd

Endur­heimta Haaland fyrir Real-rimmuna

Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, býst við því að geta nýtt krafta Erlings Haaland í fyrri leiknum gegn Real Madrid í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn.

Fótbolti
Fréttamynd

Topp­baráttan: Ár­legi City-skriðþunginn og brúðar­mærin sem vill verða brúður

Baráttan um Englandsmeistaratitilinn nær brátt hámarki. Þegar aðeins tíu umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni berjast Arsenal og Manchester City um titilinn. Skytturnar hafa verið á toppi ensku úrvalsdeildarinnar nær allt tímabilið og eru í leit að sínum fyrsta Englandsmeistaratitli í rúmlega tuttugu ár á meðan City-menn freista þess að verða meistarar í sjöunda sinn á síðustu tíu árum.

Enski boltinn