Dregur úr vindi og kólnar í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 10. febrúar 2026 07:05 Hiti verður á bilinu núll til sex stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan tíu til átján metrum á sekúndu í dag þar sem hvassast verður á Vestfjörðum og við suðurströndina.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði él eða slydduél á norðan- og austanverðu landinu, en að létti til suðvestanlands. Hiti verður á bilinu núll til sex stig, hlýjast syðst. Dregur úr vindi og kólnar í kvöld.„Á morgun verður norðaustan 8-13 m/s, en hægari norðaustantil. Dálítil él fyrir norðan og austan, en bjart að mestu í öðrum landshlutum. Frost 0 til 5 stig yfir daginn.Á fimmtudaginn verður norðvestan 8-13 m/s austast á landinu, en hægari annars staðar. Dálítil él norðanlands, en bjart að mestu sunnan heiða. Samt eru smá líkur á dálitlum éljum syðst á landinu síðdegis. Frost 2 til 10 stig að deginum, kaldast inn til landsins,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustan og norðan 5-13 m/s og dálítil él, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 1 til 7 stig og kólnar um kvöldið.Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 og yfirleitt bjart með köflum, en sums staðar dálítil él, einkum við ströndina. Frost 3 til 11 stig yfir daginn, mest inn til landsins. Á föstudag: Breytileg átt 3-10 og sums staðar él við ströndina, en yfirleitt þurrt og bjart inn til landsins. Áfram kalt í veðri. Á laugardag: Breytileg átt. Snjókoma með köflum suðaustanlands, stöku él fyrir norðan, en bjart að mestu suðvestantil. Frost 4 til 14 stig, kaldast inn til landsins. Á sunnudag: Austanátt og skýjað með köflum. Dálítil él á norðanverðu landinu, en annars þurrt að kalla. Kalt í veðri. Á mánudag: Útlit fyrir breytilega átt. Yfirleitt bjart, en sums staðar lítilsháttar él norðantil. Talsvert frost um mest allt land.
Veður Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Fleiri fréttir Sextán stig en líkur á síðdegisskúrum Bjartviðri suðvestanlands en líkur á skúrum Allhvasst suðaustantil og sums staðar rigning Viðrar vel til hátíðarhalda á höfuðborgarsvæðinu Hiti að átján stigum norðan og vestantil Austlæg átt og víða líkur á vætu 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Sólin sleikir landsmenn Áfram bongó í kortunum og nú um allt land „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Hitinn náði yfir tuttugu stig Möguleiki á að hiti fari yfir tuttugu stig í höfuðborginni Möguleiki á tuttugu stiga hita Útlit fyrir besta dag sumarsins á föstudaginn Skúrir víða um land og lægð nálgast austurströnd „Mjög venjulegt sumarveður“ Þónokkrar lægðir stýra veðrinu næstu daga Rigning öðru hverju Hitinn gæti náð fimmtán stigum á Sjómannadaginn Milt veður um helgina Nokkuð vætusamt og þungbúið en milt veður Allnokkrar smálægðir að hringsóla í grennd við landið Skýjað og víða skúrir Þungbúið og svalt austantil Hæg breytilegt átt en hiti allt að fimmtán stig Víða rigning með köflum og slydda eða snjókoma til fjalla austanlands Áfram snjór austantil og þæfingsfærð á Fjarðarheiði Gular viðvaranir vegna snjókomu Skúrir víða um land með strekkingi en lægir í kvöld Sjá meira