Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. september 2026 06:48 Margrét Halla Hansdóttir Löf er mikil hestaáhugakona. Foreldrar hennar studdu hana mikið í því áhugamáli. Saksóknari í Súlunesmálinu svokallaða krefst þess að refsing Margrétar Höllu Hansdóttur Löf verði þyngd í sautján ára fangelsi. Málsmeðferð fyrir Landsrétti lauk í liðinni viku og er dóms beðið í málinu.
Margrét var í desember síðastliðnum dæmd í sextán ára fangelsi fyrir að hafa banað föður sínum og sérstaklega hættulega líkamsárás gegn móður sinni á heimili þeirra þriggja við Súlunes í Garðabæ. Sigurður G. Guðjónsson, verjandi Margrétar, áfrýjaði dómnum í héraði á næsta dómstig og óskaði ríkissaksóknari, sem sækir sakamál fyrir hönd ríkisins við Landsrétt, eftir flýtimeðferð á afgreiðslu dómsgerða frá Héraðsdómi Reykjaness. Margrét mætti ekki Samkvæmt heimildum fréttastofu gerði saksóknari kröfu fyrir Landsrétti um að refsing Margrétar yrði ekki eingöngu staðfest heldur þyngd úr sextán ára fangelsi í sautján ár. Meðal þess sem saksóknari telur til refsiþyngingar er ofbeldi Margrétar gegn öldruðum foreldrum sínum yfir lengri tíma. Margrét kom ekki fyrir dóminn við meðferð málsins í Landsrétti. Fyrir héraðsdómi neitaði hún að svara spurningum heldur las hún upp yfirlýsingu þar sem hún lýsti yfir sakleysi sínu. Móðirin, sem er í afar erfiðri stöðu sem brotaþoli í málinu, nýorðin ekkja auk þess sem Margrét er hennar eina barn, studdi dóttur sína fyrir Landsrétti líkt og hún gerði í héraðsdómi. Meðal nýrra gagna sem komu fyrir dóminn var matsgerð er varðaði hljóðóbeit sem sögð er fela í sér skert þol fyrir ákveðnum hljóðum. Vildi verjandi Margrétar þannig skýra að Margrét hafi verið viðkvæm fyrir hljóðum og vegna þessa hafi foreldrar hennar tjáð sig við dóttur sína með bréfaskrifum á heimilinu. Matsmaður kom fyrir Landsrétt og staðfesti greinargerð sína er varðaði hljóðóbeit. Kröfu um arfleysi haldið til streitu Þá kom sömuleiðis matsmaður fyrir dóminn til að staðfesta mat sitt á dánarorsök föður Margrétar. Tveir meinafræðingar sem komu fyrir héraðsdóm líktu áverkum föður Margrétar við þá sem finnast á fólki sem lendir í hörðu bílslysi. Voru þeir sammála um að andlát hans hefði mátt rekja til áverkanna. Faðir Margrétar átti einn son sem hefur gert kröfu um að Margrét verði svipt arfi eftir föður sinn. Þá gerði réttargæslumaður hans kröfu um það fyrir dómi að þinghald í málinu yrði opið. Ekki var fallist á það heldur tekið undir sjónarmið verjanda Margrétar og móðurinnar um að þinghald yrði lokað. Hið sama var uppi á teningnum við meðferð málsins í Landsrétti. Sonur föður Margrétar ítrekaði kröfu sína fyrir Landsrétti þess efnis að hálfsystir hans yrði gerð arflaus vegna manndrápsins. Kröfunni var vísað frá héraðsdómi en það kemur í ljós innan nokkurra vikna hvaða augum Landsréttur, sem skipaður er þremur dómurum, lítur kröfuna.
Manndráp í Súlunesi Dómsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Sjá meira