Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga ólögráða stúlku í bíl á Seltjarnarnesi í nóvember í fyrra. Innlent 28.9.2026 15:42
Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Karlmaður hefur verið dæmdur til níu mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa ítrekað framið fjársvik í verslunum með því að skanna rangt strikamerki í sjálfsafgreiðslu og greiða þannig minna fyrir vörur en þær kostuðu. Innlent 28.9.2026 12:20
Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Tónlistarmanninum Elvari Orra er stefnt fyrir að hafa notað hljóðbút í upphafi lagsins „Miklu betri einn“ þar sem heyra má í tveimur stelpum sem rífast hástöfum. Þá krefst stefnandinn í málinu þess að fá miskabætur frá rapparanum. Lífið 27.9.2026 20:46
Hvenær má stjórnmálamaður miðla innherjaupplýsingum? Starfa sinna vegna búa stjórnmálamenn stundum yfir viðkvæmum upplýsingum sem geta snert skráð félög. Til dæmis upplýsingum um áformaðar skattahækkanir, svo nærtækt dæmi sé tekið í íslensku samhengi. Umræðan 23. september 2026 07:09
Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Tuttugu og fimm ára karlmaður hefur verið dæmdur í sextíu daga skilorðsbundið fangelsi eftir að hafa verið gómaður með um hundrað ljósmyndir og myndbönd af barnaníðsefni í síma sínum. Maðurinn játaði sök en ekki náðist að birta honum dóminn. Hann býr í dag í Danmörku. Innlent 22. september 2026 17:36
Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október vegna gruns um áralangt gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann er meðal annars grunaður um að hafa nauðgað konunni ítrekað á meðan hún svaf en myndir af slíku athæfi fundust í síma hans við rannsókn málsins. Innlent 22. september 2026 10:13
Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Hæstiréttur hefur hafnað áfrýjunarbeiðni manns á þrítugsaldri, sem var dæmdur í 3,5 ára fangelsi í Landsrétti fyrir að nauðga þrettán ára stúlku. Hann var sýknaður af ákæru fyrir nauðgun í héraði, þar sem ekki var talið að hann hefði beitt stúlkuna nauðung. Alla jafna fá þeir sem sýknaðir eru í héraði en sakfelldir í Landsrétti áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar en rétturinn taldi ljóst að hann myndi ekki snúa dómi Landsréttar í tilfelli mannsins og hafnaði því beiðni hans. Innlent 21. september 2026 23:30
Lárus Welding á endastöð hjá MDE Mál Lárusar Welding á hendur íslenska ríkinu verður ekki tekið fyrir í yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE). Dómstóllinn hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn Lárusi í Stím-málinu svokallaða. Innlent 21. september 2026 17:34
Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Ríkið hafði betur gegn hjónunum Ingu Dóru Sigurðardóttur og Berki Arnviðarsyni í Landsrétti. Málið varðar 2,5 prósenta skattaálag sem hjónunum var gert að greiða þegar þau fluttu heimilisfestu fyrirtækis síns frá Danmörku til Íslands afturvirkt. Þau fá 23 milljóna króna álagið ekki endurgreitt. Innlent 20. september 2026 22:01
Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni Dómsmálaráðuneytið leggur til í nýju frumvarpi að ekki verði lengur hægt að ljúka vændiskaupabrotum með lögreglustjórasekt heldur leiði þau til útgáfu ákæru og dómsmáls. Einnig er lagt til að hámarksrefsing fyrir að kaupa vændi af barni verði hækkuð úr tveggja ára fangelsi í fjögur ár. Innlent 20. september 2026 20:03
Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni og stórfellt brot í nánu sambandi gegn barnabarni sínu, stúlku á ótilgreindum aldri. Brotið átti sér stað á heimili afans. Innlent 20. september 2026 13:43
Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Tveir erlendir ríkisborgarar, karl og kona, hafa verið dæmdir í fimm og þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti. Við skýrslutökur breyttist framburður þeirra beggja iðulega en maðurinn sagði konuna hjákonu sína á meðan konan sagði þau ætla að gifta sig. Innlent 19. september 2026 16:28
Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur eru taldir vanhæfir til að dæma í máli um skerðingu lífeyrisréttinda ríkisstarfsmanna þar sem þeir eru sjálfir sjóðfélagar í sama lífeyrissjóði. Þeir gætu haft verulega fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðunni. Innlent 19. september 2026 14:11
Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Verjendur skipverjanna í Dettifossmálinu leggja til tveggja til þriggja ára fangelsi yfir skjólstæðingum sínum fyrir hlutdeild í fíkniefnainnflutningi. Saksóknari vill meina að um samverknað sé að ræða og fer fram á sjö ára fangelsi yfir báðum skipverjum. Til vara krefjast verjendurnir vægustu mögulegu refsingar fyrir meint brot. Innlent 18. september 2026 16:53
Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Verjendur Sævars Arnars Hilmarssonar og Kastriot Pepaj krefjast sýknu af ákæru um fíkniefnaflutning enda sé ósannað að þeir séu hinir svokölluðu „Cloud“ og „Milan“. Ákæruvaldið fer fram á átta og hálfs árs fangelsi yfir þeim. Verjandi Sævars notaðist við stóra bjórflösku sem leikmun í málflutningi sínum. Innlent 18. september 2026 16:00
Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Saksóknari krefst þess að Sævar Örn Hilmarsson og Kastriot Pepaj hljóti átta og hálfs árs fangelsisdóm, meðal annars fyrir skipulagningu fíkniefnainnflutnings í Dettifossmálinu. Tveimur ungum skipverjum verði gert að sæta að lágmarki sjö ára fangelsi. Innlent 18. september 2026 13:55
Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Vinir Sævars Arnar Hilmarssonar, sakbornings í Dettifossmálinu, báru skýrslu fyrir dómi í dag til þess að svara fyrir ýmsan varning sem lögreglan lagði hald á, meðal annars Rólex-úr, Louis Vuitton-tösku og Kawasaki-mótorhjól. Meðal vitna var þjóðþekktur knattspyrnumaður. Innlent 18. september 2026 13:06
Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns Níu karlmenn, sex erlendir ríkisborgarar og þrír Íslendingar, hafa verið ákærðir fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa flutt inn 106 kíló af kókaíni með skipi frá Brasilíu í júní síðastliðnum. Innlent 18. september 2026 11:06
„Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Saksóknari og verjendur í Dettifossmálinu deila um stærðir á Absolut vodkaflöskum og liti á símum. Réttarhöldin halda áfram en þeim á að óbreyttu að ljúka í dag. Innlent 18. september 2026 11:04
Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Saksóknari í Súlunesmálinu svokallaða krefst þess að refsing Margrétar Höllu Hansdóttur Löf verði þyngd í sautján ára fangelsi. Málsmeðferð fyrir Landsrétti lauk í liðinni viku og er dóms beðið í málinu. Innlent 18. september 2026 06:48
Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Landsréttur hefur þyngt dóm yfir David Gabríel S. Glascorssyni fyrir tilraun til manndráps úr þremur árum í fimm ár. Hann veittist að öðrum með hníf og veitti umfangsmikla og lífshættulega áverka. Innlent 17. september 2026 18:16
Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Davíð Bjarni Chiarolanzio hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn og beita grófu ofbeldi í Vatnagörðum í Reykjavík árið 2023. Innlent 17. september 2026 15:11
Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Landsréttur hefur sýknað Brim hf. og TM tryggingar hf. af bótakröfu foreldra ungs skipverja sem drukknaði á sjó í maí 2020. Innlent 17. september 2026 15:02
Ríkið lagði eldri borgarana Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá máli þriggja Íslendinga gegn íslenska ríkinu. Málið hefur í fjölmiðlum hér á landi yfirleitt verið kennt við Gráa herinn og varðaði breytingar á íslenska lífeyriskerfinu sem gerðar voru 2016 og 2017. Innlent 17. september 2026 12:53