„Málþófsflokkarnir“ séu mættir „í fullum skrúða með leikrit og skuespil“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 15:06 Þingflokksformenn og ráðherra sökuðu stjórnarandstöðuna um leikrit á Alþingi í dag. Vísir/samsett Þingmenn stjórnarandstöðunnar lögðu til að þriðju umræðu um frumvarp dómsmálaráðherra um afturköllun alþjóðlegrar verndar yrði flýtt á Alþingi í dag. Með þessu sögðust þingmenn vilja „leggja fram hjálparhönd“ til dómsmálaráðherra til að unnt væri að afgreiða málið, en stjórnarþingmenn sökuðu stjórnarandstöðuna um að fara með leikþátt. Tillagan var felld með 29 atkvæðum þingmanna stjórnarflokkanna gegn 19 atkvæðum stjórnarandstöðunnar.
Þórunn Sveinbjarnardóttir bar upp dagskrártillögu sem borist hafði frá Sigríði Andersen, þingmanni Miðflokksins auk annarra, þar sem lagt var til að dagskrá þingfundar í dag væri breytt á þá leið að umræðu um lög um útlendinga, sem varðar afturköllun alþjóðlegrar verndar, myndi fara fram sem fyrsta mál á dagskrá þingfundarins að loknum umræðum um störf þingsins. Dagskrá gerði hins vegar ráð fyrir að önnur umræða um almannatryggingafrumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um launavísitölu, yrði fyrsta mál á dagskrá og afturköllun alþjóðlegrar verndar næst þar á eftir. Vildu „rétta fram hjálparhönd“ Nokkur fjöldi þingmanna steig í pontu og gerði grein fyrir atkvæði sínu, en þeirra fyrstur var Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins. „Mál er varðar afturköllun alþjóðlegrar verndar var tekið út úr allsherjar- og menntamálanefnd háttvirtri 5. desember síðastliðinn. Síðan eru liðnir 67 dagar. Málið hefur ítrekað verið aftast á dagskrá og alltaf á eftir þungum umræðumálum. Sama á við í dag. Í dag er áætlað að almannatryggingar verði ræddar áfram áður en þetta mál kemst til lokaafgreiðslu. Enn einu sinni réttum við í stjórnarandstöðunni fram hjálparhönd til hæstvirts dómsmálaráðherra varðandi það að mál hæstvirts ráðherra komist til lokaafgreiðslu,“ sagði Bergþór meðal annars. Bergþór Ólason var meðal þeirra sem vildi breyta dagskrá þingfundarins í dag.vísir/vilhelm Þau Jens Garðar Helgason og Bryndís Haraldsdóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, tóku undir með Bergþóri og það gerðu flokksystkini hans Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir og Snorri Másson einnig. Svo bar við að nokkrum þingmönnum virtist heitt í hamsi vegna málsins, bæði úr röðum stjórnar og stjórnarandstöðu. Rifjuðu upp samningaviðræður um þinglok í desember Þannig sökuðu þingflokksformenn Viðreisnar og Samfylkingarinnar stjórnarandstöðuna um að fara með leikrit á Alþingi með uppátækinu sem fælist í dagskrártillögunni. Sigmar Guðmundsson benti á að honum þætti engin ástæða til að breyta dagskránni, enda væri útlendingafrumvarpið annað mál á dagskrá. „Mig langar líka aðeins, bara rétt aðeins, að færa okkur aðeins aftur í tímann inn í desembermánuð, þar sem við gerðum mikla atlögu að því, þingflokksformenn á fundum og hér í umræðu í þingsal, að reyna að ná samstöðu um það að klára afturköllun alþjóðlegrar verndar fyrir jólafrí. Um það náðist hins vegar ekki samkomulag, bara svo því sé haldið til haga,“ sagði Sigmar. Um leið rifjaði hann upp að fréttir hafi verið fluttar af því í kringum lok þingsins í desember að til þess hafi verið vilji af hálfu ríkisstjórnarflokkanna en að á það hafi ekki verið fallist. „Allt er það skjalfest þannig að þessi tillaga sem hér er uppi núna er auðvitað bara einhvers konar „skuespil“ í ljósi stöðunnar, ofur einfaldlega,“ sagði Sigmar, en skuespil er dönskusletta og þýðir leikrit. Guðmundur Ari Sigurjónsson greip í svipað orðalag. „Það er áhugavert leikrit sem hér fer í gang, ákveðin sýndarmennska þar sem umræðan snýst um umbúðirnar en ekki innihaldið. Hér er því haldið fram að þetta mál hafi beðið vikum saman. Það var einmitt afgreitt úr nefnd síðastliðinn fimmtudag og svo var ekki þingfundur á föstudag. Málið var á dagskrá í gær en komst ekki að vegna þess að stjórnarandstaðan var upptekin við að tefja fyrir kjarabótum aldraðra og öryrkja,” sagði Guðmundur Ari meðal annars. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir kvaðst ekki skilja um hvað meintur leikþáttur ætti að snúast.Vísir Þessum líkingum við leikrit vísuðu þingmenn stjórnarandstöðunnar á bug. „Ég er vissulega ein af þessum nýju þingmönnum hérna en ég skil ekki alveg þetta tal um leikrit því að ég held að allir sem eru heima að horfa sjái alveg í gegnum leikritið hjá stjórnarmeirihlutanum,“ sagði Nanna Margrét meðal annars. Eftir mikla þrumuræðu Nönnu Margrétar, þar sem hún tók undir orð formanns Sjálfstæðisflokksins um að almannatryggingamálið væri eitt „stærsta og versta mál ríkisstjórnarinnar,“ tók Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, til máls. „Á þremur fundum með formönnum flokka í desember bað ég formenn stjórnarandstöðuflokkanna ítrekað að afgreiða afturköllun verndar. Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Sigurð Inga Jóhannsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Ítrekað, á hverjum einasta fundi. Alltaf var nei, nei, nei, þvert nei í öllu þessu. Allur var nú viljinn þá, þannig að þetta kemur mér mjög á óvart. En hitt kemur mér ekki á óvart, við erum að sjá það að afturköllun verndar er strax á eftir fyrsta dagskrármálinu, málinu þar sem stjórnarandstöðunni er mjög í mun að aldraðir og öryrkjar fái ekki sínar kjarabætur. Það er þeirra málþóf. Það er nefnilega málið, málþófsflokkarnir frá síðasta ári þeir eru að birtast núna í fullum skrúða,” sagði Þorgerður Katrín.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Samfylkingin Miðflokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira