Leikskólamál í Reykjavík – staðreyndir og mögulegar lausnir Baldur Borgþórsson og Hlynur Áskelsson skrifa 10. febrúar 2026 18:00 Börnin eru framtíðin, Leikskólamál í Reykjavík eru í alvarlegum vanda. Vandinn er ekki tímabundinn heldur kerfisbundinn og hefur verið staðfestur ítrekað í gögnum frá Ríkisendurskoðun, Hagstofu Íslands og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hvað er að? Skortur á menntuðum leikskólakennurum er eitt stærsta vandamálið. Í Reykjavík er hlutfall menntaðs starfsfólks víða langt undir þeim markmiðum sem sett eru í lögum. Þetta leiðir til mikils álags, veikindaforfalla og lokana deilda. Samkvæmt gögnum Hagstofu er stór hluti starfsfólks í leikskólum án kennaramenntunar og er þar um að kenna launum miðað við námskröfur, styttingu vinnuvikunnar án skilnings rekstraraðila og fjárskorts. Það er því rekstrarform borgarinnar sem ýtir undir manneklu. Laun, vaktakerfi og starfsumhverfi standast illa samanburð við aðra opinbera vinnustaði. Afleiðingin er hröð starfsmannavelta og stutt stopp ákveðins kjarna í starfi. Stjórnsýslan er of miðstýrð. Leikskólastjórar hafa takmarkað sjálfstæði yfir ráðningum, skipulagi og daglegum rekstri. Þetta dregur úr faglegri ábyrgð og hægir á lausnum. Foreldrar bera afleiðingarnar. Skertir opnunartímar, sameining deilda og lokanir með skömmum fyrirvara hafa bein áhrif á atvinnuþátttöku og öryggi fjölskyldna. Þetta er viðurkennt vandamál í gögnum Reykjavíkurborgar. Hver er ekki orsökin? Vandinn stafar ekki fyrst og fremst af fjölgun barna, ekki af ófyrirséðum aðstæðum eða tekjuskorti borgarinnar. Hann á rætur í skipulagi, forgangsröðun og ábyrgðarleysi í málefninu sjálfu, rekstraraðilans, stjórnendum borgarinnar. Því er gott að horfa til einkarekna leikskóla sem fæstir standa í slíkum vanda.Hver er lausnin?Leikskólinn þarf að verða raunverulegt fyrsta skólastig með skýrri sameiginlegri ábyrgð ríkis og sveitarfélaga. Starfsumhverfi og kjör þurfa að endurspegla það hlutverk.Leikskólar þurfa meira sjálfstæði í rekstri. Stjórnendur eiga að hafa raunverulegt vald yfir ráðningum, vaktakerfum og nýtingu fjármagns. Meiri ábyrgð skapar meira aðhald og skilning á rekstri leikskólans. Minnka þarf yfirbyggingu og afskipti ófaglegra aðila sem skipa sig í stjórnir og ráð málaflokksins.Nýta þarf einkarekstur og sjálfstæða aðila með skýrum reglum og eftirliti. Reynslan úr öðrum sveitarfélögum sýnir meiri stöðugleika þar sem slíkt samstarf er fyrir hendi.Að lokum þarf að tala skýrt við foreldra. Loforð sem standast ekki grafa undan trausti. Heiðarleg þjónustuviðmið og markviss umbótaleið er lausn til framtíðar. Loforð og plástrar heyra liðinni tíð.Leikskólamál í Reykjavík eru því ekki í vanda vegna skorts á vilja heldur vegna stýringar aðila þar sem enginn ber skýra ábyrgð. Leikskólastjórar og kennarar eiga skilið að sýna getu sína í verki.Börnin og leikskólinn eiga miklu betra skilið, leikskólastjórar, leikskólakennarar sem og aðrir starfsmennBörn og foreldrar eiga ekki að borga fyrir vanmátt og skipulagsleysi borgarinnar.Höfundar eru ráðgjafi og kennari og eru fyrirsvarsmenn Okkar borg. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Okkar borg Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Leikskólar Mest lesið Þegar sölumaður áfengis fræðir okkur um lýðheilsu Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Þegar enginn lætur vita - ofbeiting laga og kerfisblinda Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Næsti formaður Framsóknar Salvör Sól Jóhannsdóttir Skoðun Stöðluð meðalmennska og einkunnir án aðgreiningar Hlédís Maren Guðmundsdóttir Skoðun Takk læknar! Siv Friðleifsdóttir Skoðun Sveitarstjórnarkosningar 2026 – hvað gera Vinir Kópavogs? Ólafur Björnsson Skoðun Næsti formaður elsta stjórnmálaflokks Íslands – Framsóknarflokksins Þorvaldur Daníelsson Skoðun Bréf til Láru Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Takk fyrir traustið! Hörður Arnarson Skoðun Má bjóða þér meiri forræðishyggju, Lára? Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Efnahagsleg ábyrgð er fjölskyldumál Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Leikskólamál í Reykjavík – staðreyndir og mögulegar lausnir Baldur Borgþórsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Takk læknar! Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Fjarðarheiðargöng: Öryggi, traust og framtíð Austurlands í húfi Guðný Lára Guðrúnardóttir skrifar Skoðun Ísland er að tapa hundruðum milljarða – eitrað framkvæmdakerfi lamar allt samfélagið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stöðluð meðalmennska og einkunnir án aðgreiningar Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sveitarstjórnarkosningar 2026 – hvað gera Vinir Kópavogs? Ólafur Björnsson skrifar Skoðun Bréf til Láru Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi sem treystir á seiglu Sandra B. Franks skrifar Skoðun Er gervigreind verkfæri kommúnistans eða kapítalistans? Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Takk fyrir traustið! Hörður Arnarson skrifar Skoðun Laxeldisumræðan er lýðræðisumræða Gylfi Ólafsson skrifar Skoðun Endurvekjum hvata til fjárfestinga Hildur Eiríksdóttir skrifar Skoðun Næsti formaður elsta stjórnmálaflokks Íslands – Framsóknarflokksins Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Flott framtak Reykjavíkurráðs ungmenna Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Næsti formaður Framsóknar Salvör Sól Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Er smá Insta á skólatíma best? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar sölumaður áfengis fræðir okkur um lýðheilsu Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Borgarlínuþrengingar Elías B. Elíasson,Ragnar Árnason,Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Gerđur B. Sveinsdóttir,Sigríđur Júlía Brynleifsdóttir,Bragi Þór Thorodssen,Þorgeir Pálsson,Jóna Árný Þórđardóttir,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Jón Páll Hreinsson skrifar Skoðun Norska konungdæmið Ingibjörg Kristín Jónsdóttir skrifar Skoðun Vangaveltur um „fólkið sem hvarf“ Skírnir Garðarsson skrifar Skoðun Karlmenn sem ógna landi og þjóð Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Að verða læs fyrir lífið Rúnar Sigþórsson skrifar Skoðun Grunnþjónusta fyrst og svo allt hitt……er flotgufa forgangsmál? Katrín Magnúsdóttir skrifar Skoðun Jafnrétti er ekki „aukaverkefni“ Arnar Gíslason,Joanna Marcinkowska,Sveinn Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur þurfa jafnvægi, ekki skotgrafir Þórir Garðarsson skrifar Skoðun U-beygja í öldrunarþjónustu er ekki lausn Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hvenær er komið nóg? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og öryggi Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Leikskólamál í Reykjavík – staðreyndir og mögulegar lausnir Baldur Borgþórsson,Hlynur Áskelsson skrifar
Skoðun Fjarðarheiðargöng: Öryggi, traust og framtíð Austurlands í húfi Guðný Lára Guðrúnardóttir skrifar
Skoðun Ísland er að tapa hundruðum milljarða – eitrað framkvæmdakerfi lamar allt samfélagið Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Næsti formaður elsta stjórnmálaflokks Íslands – Framsóknarflokksins Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Lagareldi til framtíðar – ábyrgur rammi fyrir atvinnulíf, umhverfi og samfélög Gerđur B. Sveinsdóttir,Sigríđur Júlía Brynleifsdóttir,Bragi Þór Thorodssen,Þorgeir Pálsson,Jóna Árný Þórđardóttir,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Jón Páll Hreinsson skrifar
Skoðun Jafnrétti er ekki „aukaverkefni“ Arnar Gíslason,Joanna Marcinkowska,Sveinn Guðmundsson skrifar